Inngangur

Þessi vinnubíll er aðallega ætlaður til notkunar utan vega við flutning fólks og efnis. Notkun þessarar vöru við annað en tilætlaða notkun getur skapað hættu fyrir stjórnanda og nærstadda.

Lesið þessar upplýsingar vandlega til að læra að stjórna og sinna réttu viðhaldi á vörunni og til að koma í veg fyrir meiðsl og skemmdir á vörunni. Eigandi ber ábyrgð á réttri og öruggri notkun vörunnar.

Á www.Toro.com er að finna kennsluefni tengt öryggi og notkun vörunnar, upplýsingar um aukabúnað, upplýsingar um söluaðila og vöruskráningu.

Þegar þörf er á þjónustu, varahlutum frá Toro eða frekari upplýsingum skal hafa samband við viðurkenndan þjónustu- og dreifingaraðila eða þjónustuver Toro og hafa tegundar- og raðnúmer vörunnar við höndina. Mynd 1 sýnir hvar tegundar- og raðnúmerin eru á vörunni. Skrifið númerin í kassann hér á síðunni.

Important: Hægt er nálgast upplýsingar um ábyrgð, varahluti og aðrar vöruupplýsingar með því að skanna QR-kóðann á raðnúmersmerkingunni (ef hann er til staðar) með fartæki.

g282597

Þessi handbók notar 2 orð til að auðkenna upplýsingar. Mikilvægt“ vekur athygli á sérstökum vélrænum upplýsingum og Athugið“ undirstrikar almennar upplýsingar sem vert er að lesa vandlega.

Öryggistáknið (Mynd 2) kemur bæði fyrir í þessari handbók og á vinnubílnum og er ætlað að auðkenna mikilvægar öryggisupplýsingar sem taka þarf mið af til að forðast slys. Þetta tákn birtist ásamt orðinu Hætta, Viðvörun eða Varúð.

  • Hætta gefur til kynna yfirvofandi hættulegar aðstæður sem valda dauða eða alvarlegum meiðslum ef ekki er komið í veg fyrir þær.

  • Viðvörun gefur til kynna hugsanlega hættu sem gæti valdið dauða eða alvarlegum meiðslum ef ekki er komið í veg fyrir hana.

  • Varúð gefur til kynna hugsanlega hættu sem getur valdið minni háttar eða alvarlegri meiðslum ef ekki er komið í veg fyrir hana.

g000502

Þessi vara uppfyllir allar viðeigandi evrópskar reglugerðir; frekari upplýsingar er að finna á aðskildu samræmisyfirlýsingarskjali vörunnar.

Viðvörun

KALIFORNÍA

Viðvörun, tillaga 65

Rafmagnssnúran fyrir þessa vöru inniheldur blý, sem er efni sem Kaliforníuríki er kunnugt um að geti valdið fæðingargöllum eða öðrum æxlunarskaða. Þvoið hendur eftir meðhöndlun.

Rafgeymaskaut og tengihlutir innihalda blý og blýsambönd, efni sem Kaliforníuríki er kunnugt um að geti valdið krabbameini og æxlunarskaða. Þvoið hendur eftir meðhöndlun.

Öryggi

Þessi vinnubíll er hannaður í samræmi við kröfur SAE J2258 (nóv. 2016).

Almennt öryggi

Þessi vara getur valdið meiðslum á fólki. Fylgið alltaf öryggisleiðbeiningum til að koma í veg fyrir meiðsl á fólki.

  • Lesið til hlítar efni þessarar notendahandbókar áður en vinnubíllinn er tekinn í notkun. Gangið úr skugga um að allir sem nota vinnubílinn kunni að nota hann og skilji viðvaranirnar.

  • Sýnið árvekni á meðan unnið er á vinnubílnum. Ekki gera neitt sem veldur truflun; slíkt kann að leiða meiðsla eða eignatjóns.

  • Ekki setja hendur eða fætur nærri íhlutum á hreyfingu.

  • Ekki nota vinnubílinn án hlífa og annars öryggisbúnaðar á sínum stað á vinnubílnum og í nothæfu ástandi.

  • Haldið nærstöddum og börnum utan vinnusvæðisins. Aldrei skal leyfa börnum að vinna á vinnubílnum.

  • Stöðvið vinnubílinn, drepið á honum og fjarlægið lykilinn áður en viðhaldi er sinnt.

Röng notkun eða viðhald þessarar vinnuvélar getur leitt til meiðsla. Til að draga úr slysahættu skal fara eftir þessum öryggisleiðbeiningum og vera ávallt vakandi fyrir öryggistákninu Graphic, sem merkir Aðgát“, Viðvörun“ eða Hætta“ – öryggisleiðbeiningar. Ef ekki er farið eftir þessum leiðbeiningum er hætta á meiðslum á fólki eða dauða.

Öryggis- og leiðbeiningarmerkingar

Graphic

Öryggismerkingar og leiðbeiningar sjást greinilega og eru hjá öllum svæðum þar sem möguleg hætta er til staðar. Skiptið um skemmdar eða týndar merkingar.

decal115-7739
decal145-2263
decal131-8527
decal137-9712
decal137-9984
decal139-4610
decal145-2275
decal145-2261
decal140-4590
decal145-8016

Uppsetning

Note: Miðið vinstri og hægri hlið vinnubílsins út frá hefðbundinni vinnustöðu.

Uppsetning stýris (aðeins á alþjóðlegum gerðum)

Hlutar sem þarf fyrir þetta verk:

Stýri1
Stýrishlíf1
Skinna (½ to.)1
Rykhlíf1
  1. Ef hlíf hefur verið sett upp skal fjarlægja hana af nöf stýrisins (Mynd 3).

  2. Fjarlægið lásróna (½ to.) af stýrisskaftinu (Mynd 3).

  3. Rennið stýrinu, rykhlífinni og skinnunni (½ to.) upp á stýrisskaftið (Mynd 3).

    Note: Látið framhjólin vera bein og snúið stýrinu þannig að smærri teinninn á stýrinu sé lóðréttur.

  4. Festið stýrið á skaftið með lásrónni (½ to.) og herðið hana í 18 til 30 N∙m.

  5. Setjið hlífina á stýrið (Mynd 3).

    g198932

Vökvastaða og þrýstingur í hjólbörðum könnuð

  1. Gangið úr skugga um að rafgeymarnir séu hlaðnir; sjá Li-ion rafhlöður settar í hleðslu.

  2. Athugið hæð hemlavökvans áður en vinnubíllinn er notaður; sjá Athugun á hæð hemlavökvans.

  3. Kannið loftþrýsting í hjólbörðum; sjá Þrýstingur hjólbarða kannaður.

Hemlar slípaðir

Slípið (keyrið til) hemlana fyrir notkun til að tryggja hámarksvirkni hemlakerfisins.

  1. Akið vinnubílnum eins hratt og hægt er og hemlið svo hratt án þess að læsa hemlunum.

  2. Endurtakið þetta tíu sinnum, með einnar mínútu hléum, til að koma í veg fyrir að hemlarnir ofhitni.

    Important: Þetta ferli skilar bestum árangri ef vinnubíllinn ber 227 kg farm.

Handbók lesin og uppsetningarefni skoðað

Hlutar sem þarf fyrir þetta verk:

Notendahandbók1
Skráningarskírteini1
Fylgiskjal vegna skoðunar fyrir afhendingu1
Gæðavottorð1
Hnappur2
  • Lesið notendahandbókina.

  • Fyllið út skráningarskírteinið.

  • Ljúkið við fylgiskjal vegna skoðunar fyrir afhendingu.

  • Farið yfir gæðavottorðið.

Yfirlit yfir vöru

g319171
g319172

Stjórnborð

g377919

Inngjafarfótstig

Notið inngjafarfótstigið (Mynd 6) til að stjórna aksturshraða vinnubílsins. Stígið á inngjafarfótstigið til að gangsetja vinnubílinn. Aksturshraðinn eykst eftir því sem stigið er fastar á fótstigið. Vinnubíllinn hægir á sér um leið og stigið er af fótstiginu og síðan drepur vinnubíllinn á sér.

Hámarkshraði áfram í afkastastillingu er 26 km/klst. eins og sýnt er á Mynd 16.

Hámarkshraði áfram í sparnaðarstillingu er 19 km/klst. eins og sýnt er á Mynd 16.

Hemlafótstig

Notið hemlafótstigið til að stöðva eða hægja á vinnubílnum (Mynd 6).

Varúð

Hætta er á að meiðslum á fólki ef unnið er á vinnubílnum með slitna eða rangt stillta hemla.

Ef hægt er að stíga hemlafótstigið neðar en 25 mm frá gólfi vinnubílsins þarf að stilla eða gera við hemlana.

Stöðuhemilsstöng

Stöðuhemilsstöngin er á mælaborðinu (Mynd 6).

Setjið alltaf stöðuhemilinn á þegar drepið er á vélinni til að koma í veg fyrir að vinnubíllinn hreyfist úr stað fyrir slysni. Ef vinnubílnum er lagt í miklum halla skal gæta þess að setja stöðuhemilinn á.

Togið stöðuhemilsstöngina í átt að stjórnanda til að setja stöðuhemilinn á (Mynd 7).

g033923

Til að taka stöðuhemilinn af skal ýta á hnappinn efst á stöðuhemilsstönginni, toga stöðuhemiulsstöngina í átt að stjórnanda til að losa um þrýsting og ýta stöðuhemilsstönginni því næst fram (Mynd 8).

g033924

Stefnustöng

Stefnustöngin er vinstra megin við stöðuhemilsstöngina. Stefnustöngin hefur þrjár stöður: FRAMGíR, BAKKGíR og HLUTLAUSAN GíR (Mynd 6).

Note: Hægt er að setja vinnubílinn í eina af þessum þremur stöðum, en hann hreyfist einungis í FRAMGíR og BAKKGíR.

Important: Stöðvið ávallt vinnubílinn áður en skipt er um akstursstefnu.

Flauturofi

Flauturofinn er á stjórnborðinu (Mynd 6). Ýtið á flauturofann til að flauta.

Ljósarofi

Notið ljósarofann (Mynd 6) til að kveikja á aðalljósunum. Ýtið ljósarofanum upp til að kveikja á aðalljósunum. Ýtið ljósarofanum niður til að slökkva á aðalljósunum.

USB-innstunga

USB-innstungan er staðsett vinstra megin við stöðuhemilsstöngina (Mynd 6). Notið innstunguna sem aflgjafa fyrir fartæki.

Important: Þegar USB-innstungan er ekki í notkun skal setja gúmmíhlíf yfir hana til að hindra að innstungan verði fyrir skemmdum.

Sviss

Notið svissinn (Mynd 6) til að gangsetja vinnubílinn og drepa á honum.

Svissinn er hægt að setja í tvær stöður: Á og AF. Svissið Á til að nota vinnubílinn. Eftir að vinnubíllinn hefur verið stöðvaður skal snúa lyklinum rangsælis til að svissa AF og drepa á bílnum. Fjarlægið ávallt lykilinn þegar gengið er frá vinnubílnum.

Skjámynd

Skjárinn birtir upplýsingar um vinnubílinn, á borð við vinnslustöðu, ýmsar greiningar og aðrar upplýsingar um vinnubílinn (Mynd 9).

g320256

Skjárinn sýnir upphafsskjá, akstursskjá og hleðsluskjá (Mynd 10, Mynd 11 og Mynd 12).

Mynd 11 er sýnishorn af því sem kann að sjást skjánum þegar unnið er á vinnubílnum. Upphafsskjámyndin opnast í nokkrar sekúndur eftir að svissað er Á og áður en akstursskjárinn opnast.

g321175
g321176
g321177

Akstursskjárinn ásamt stöðustefnu (Mynd 13) birtist þegar skipt er um akstursátt.

g321180

Akstursskjárinn ásamt núverandi aksturshraða vinnubílsins (Mynd 14) birtist þegar honum er ekið.

g321181

Virkur bilunarkóði (Mynd 15) birtist á skjánum ef vandamál kemur upp í vinnubílnum.

g321179

Lýsingar á táknum

GraphicStefna—FRAMGíR
GraphicStefna—HLUTLAUS GíR
GraphicStefna—BAKKGíR
GraphicStöðuhemill er á.
GraphicVinnustundamælir
GraphicLjós—KVEIKT
GraphicRafhlöðuspenna
GraphicHleðsla rafhlöðu – hvert heilt strik stendur fyrir 10% hleðslu.
Graphic
  • Viðvörun um litla hleðslu á rafgeymi

  • Rafgeymirinn er í hleðslu

GraphicKveikt er á Eco-stillingu.
GraphicVirk bilun
GraphicKaldræsing

Hraðaeftirlitsrofi

Hraðaeftirlitsrofinn er undir sætissamstæðunni og hefur tvær stillingar: AFKASTASTILLINGU og SPARNAðARSTILLINGU. Snúið rofanum réttsælis á SPARNAðARSTILLINGUNA til að takmarka aksturshraða vinnubílsins við 19 km/klst. Snúið rofanum rangsælis á AFKASTASTILLINGUNA til að endurstilla hámarkshraða vinnubílsins á 26 km/klst. eins og sýnt er á Mynd 16.

g319173

Handföng fyrir farþega

Handföng fyrir farþega eru staðsett á hverju sæti að utanverðu (Mynd 17).

g033955

Note: Tæknilýsingar og hönnun geta breyst án fyrirvara.

GrunnþyngdÞurrvigt 456 kg
Uppgefin afkastageta (á sléttu undirlagi)544 kg samtals, eða ásamt stjórnanda vinnubíls sem er 91 kg og farþega sem er 91 kg, hlassi, aukabúnaði og tengitækjum
Hámarksheildarþyngd ökutækisins (GVW) – á sléttu undirlagi1000 kg samtals, að öllum þyngdum hér á undan meðtöldum
Hámarks burðargeta fyrir farm (á sléttu undirlagi)363 kg samtals, þ.m.t. aukabúnaði sem er festur að aftan
Hámarkshleðsla festinga fyrir aukabúnað á palli að aftan45 kg alls
DráttargetaÞyngd á krók: 91 kg
Hámarksþyngd eftirvagns (GTW): 680 kg
Heildarbreidd119 cm
Heildarlengd302 cm
Heildarhæð127,5 cm
Fríbil frá jörðu21,6 cm að framan, án farms og stjórnanda
14 cm að aftan, án farms og stjórnanda
Hjólhaf220 cm
Sporvídd (miðlína að miðlínu)Að framan: 119 cm
Að aftan: 119 cm
Lengd pallsAð innanverðu: 102 cm
Að utanverðu: 114,3 cm
Breidd pallsAð innan: 98 cm
Á formmótuðu stuðurunum að utanverðu: 107,3 cm
Hæð palls28 cm að innanverðu

Tengitæki/aukabúnaður

Úrval tengitækja og aukabúnaðar sem Toro samþykkir er í boði fyrir vinnuvélina til að auka við afkastagetu hennar. Hafið samband við viðurkenndan þjónustu- og söluaðila eða dreifingaraðila Toro eða farið á www.Toro.com þar sem finna má lista yfir öll samþykkt tengitæki og aukabúnað.

Notið eingöngu varahluti og aukabúnað frá Toro til að tryggja hámarksafköst og áframhaldandi öryggisvottun vinnuvélarinnar. Varahlutir og aukabúnaður frá öðrum framleiðendum geta reynst hættulegir og notkun þeirra kann að fella ábyrgðina úr gildi.

Notkun

Note: Verklagið í þessum kafla sýnir vinnubíl með plastpall og körfusæti. Upplýsingar um verklag fyrir tengibúnað af annarri gerð er að finna í notkunarkafla (ef slíkt á við) leiðbeininga um uppsetningu. Farið á www.Toro.com til að fá leiðbeiningar eða skannið inn QR-kóða tengitækisins (þegar slíkt á við).

Fyrir notkun

Öryggi fyrir notkun

Almennt öryggi

  • Aldrei leyfa börnum eða fólki, sem ekki hefur til þess þjálfun eða líkamlega getu, að vinna á eða við vinnubílinn. Gildandi reglur á hverjum stað kunna að setja takmörk við aldur stjórnanda. Eigandinn ber ábyrgð á að þjálfa stjórnendur og vélvirkja.

  • Kynnið ykkur örugga notkun búnaðarins, stjórntækjanna og öryggismerkinganna.

  • Drepið á vélinni, takið lykilinn úr og bíðið þar til allir hlutar hafa stöðvast áður en farið er úr ökumannssætinu. Leyfið vinnubílnum að kólna áður en hann er stilltur, þjónustaður, þrifinn eða settur í geymslu.

  • Lærið að stöðva vinnubílinn og drepa á honum á skjótan máta.

  • Tryggið að farþegar (stjórnandi og farþegi) séu ekki fleiri en handföngin á vinnubílnum.

  • Gangið úr skugga um að allur öryggisbúnaður og merkingar séu á sínum stað. Gerið við eða skiptið um öryggisbúnað og setjið nýjar merkingar í stað þeirra sem eru ólæsilegar eða vantar. Ekki nota vinnubílinn ef þessir hlutir eru ekki til staðar eða virka ekki rétt.

Daglegt viðhald

Tíðni viðhaldsþjónustuViðhaldsferli
Fyrir hverja notkun eða daglega
  • Leitið eftir sliti, skurðum eða öðrum skemmdum á sætisbeltunum. Skiptið um sætisbelti ef einhver hluti þeirra virkar ekki rétt.
  • Fara skal í gegnum ferli fyrir hverja notkun/daglegt ferli sem lýst er í áður en unnið er á vinnubílnum í upphafi hvers dags.

    Þrýstingur hjólbarða kannaður

    Tíðni viðhaldsþjónustuViðhaldsferli
    Fyrir hverja notkun eða daglega
  • Kannið þrýsting í hjólbörðum.
  • Forskrift loftþrýstings í hjólbörðum afturdekkja: 2,07 bar

    Important: Farið ekki yfir hámarksþrýstinginn sem tilgreindur er á annarri hlið hjólbarðans.

    Note: Áskilinn loftþrýstingur í hjólbörðum ræðst af farmþunganum sem bílnum er ætlað að bera.

    1. Kannið loftþrýsting í hjólbörðum.

      • Notið lægri loftþrýsting í hjólbörðum þegar farmþungi er minni, til að minka þjöppun jarðvegar, gera aksturinn jafnari og lágmarka hjólfaramyndun.

      • Notið hærri loftþrýsting í hjólbörðum þegar ekið er með meiri farmþunga á meiri hraða.

    2. Stillið loftþrýsting í hjólbörðunum, ef þörf krefur, með því að bæta við eða tappa af lofti í hjólbörðunum.

    g001055

    Tilkeyrsla nýs vinnubíls

    Tíðni viðhaldsþjónustuViðhaldsferli
    Eftir fyrstu 100 klukkustundirnar
  • Fylgið leiðbeiningum um tilkeyrslu nýrra vinnubíla.
  • Fylgið leiðbeiningum um tilkeyrslu nýrra vinnubíla til að tryggja fullnægjandi afköst og endingartíma vinnubílsins.

    • Athugið hæð hemlavökva.

    • Ekki hemla of skart fyrstu vinnustundirnar við tilkeyrslu vinnubílsins. Hugsanlega skila hemlaklossar ekki hámarksafköstum fyrr en nokkrum vinnustundum eftir notkun eftir tilkeyrslu hemlanna.

    • Sjá varðandi tíðari skoðanir.

    • Kannið staðsetningu fjöðrunar að framan og stillið eftir þöfum. Sjá nánar í Stilling framhjóla.

    • Notið eftirfarandi verklag við tilkeyrslu til að tryggja hámarksafköst og endingartíma rafgeymis:

      1. Hlaðið rafgeymana í 100% áður en vinnubíllinn er notaður í fyrsta sinn.

      2. Akið vinnubílnum þar til viðvörun um lága stöðu rafgeymanna birtist á skjánum (u.þ.b. 5% eftir) og hlaðið síðan rafgeymana í 100%.

        Endurtakið þetta skref fjórum sinnum til að tryggja hámarksafköst rafgeyma.

    Meðan á notkun stendur

    Öryggi við notkun

    Almennt öryggi

    • Eigandinn/stjórnandinn getur komið í veg fyrir og ber ábyrgð á slysum sem geta valdið meiðslum á fólki eða eignatjóni.

    • Farþegar mega eingöngu sitja í þar til ætluðu sæti. Flytjið ekki farþega á pallinum. Haldið nærstöddum og gæludýrum í öruggri fjarlægð frá vinnubílnum meðan á vinnu stendur.

    • Klæðist viðeigandi klæðnaði, þar á meðal hlífðargleraugum, síðbuxum og sterkum skófatnaði með skrikvörn. Takið sítt hár í tagl og ekki klæðast víðum fatnaði eða hangandi skartgripum.

    • Sýnið árvekni á meðan unnið er á vinnubílnum. Ekki gera neitt sem veldur truflun; slíkt kann að leiða meiðsla eða eignatjóns.

    • Notið ekki vinnubílinn veik, þreytt eða undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna.

    • Ekki fara yfir hámarksheildarþyngd vinnubílsins.

    • Sýnið sérstaka aðgát við að hemla eða beygja með þungan farm á pallinum.

    • Mjög fyrirferðarmikill farmur á pallinum dregur úr stöðugleika vinnubílsins. Ekki fara umfram burðargetu pallsins.

    • Akstur með efni sem ekki er hægt binda niður hefur neikvæð áhrif á stýringu, hemla og stöðugleika vinnubílsins. Sýnið aðgát við stýringu og hemlun þegar ekið er með efni sem ekki er hægt að binda niður.

    • Akið með léttari farm og á minni hraða þegar ekið er yfir gróft og ójafnt undirlag og nærri köntum, holum og öðrum miklum breytingum á undirlagi. Farmur getur hreyfst til og valdið því að vinnubíllinn verður óstöðugur.

    • Áður en vinnubíllinn er gangsettur þarf að tryggja að gírskiptingin sé í hlutlausum gír, stöðuhemillinn sé á og að stjórnandinn sitji í sætinu.

    • Stjórnandi og farþegar skulu sitja í sæti sínu þegar vinnubíllinn er á ferð. Haldið höndum á stýri; farþegar skulu nota þar til gerð handföng. Haldið handleggjum og fótleggjum öllum stundum innan bíls.

    • Vinnið eingöngu á vinnubílnum með góða yfirsýn. Verið vakandi fyrir holum, skorningum, ójöfnum, grjóti eða öðrum huldum hlutum. Óslétt undirlag getur valdið því að vinnubíllinn velti. Hátt gras getur hulið hindranir. Sýnið aðgát þegar komið er að blindhornum, runnum, trjám eða öðrum hlutum sem kunna að takmarka útsýnið.

    • Ekki aka vinnubílnum nálægt háum bökkum, skurðum og vegköntum. Vinnubíllinn getur oltið mjög skyndilega ef hjól fer fram af brúninni eða bakkinn gefur eftir.

    • Verið alltaf vakandi fyrir og forðist hindranir fyrir ofan bílinn, svo sem trjágreinar, dyrastafi, göngubrýr o.s.frv.

    • Lítið aftur fyrir og niður áður en bakkað er til að tryggja að leiðin sé greið.

    • Þegar vinnubílnum er ekið á vegum skal fylgja umferðarreglum og nota allan viðbótarbúnað sem lög kunna að krefjast, svo sem ljós, stefnuljós, merki um hægfara ökutæki og annað sem krafist ef.

    • Ef vinnubíllinn titrar óeðlilega mikið skal stöðva vinnubílinn og drepa á honum tafarlaust. Bíðið þar til hlutir á hreyfingu hafa stöðvast og leitið eftir skemmdum. Gerið við skemmdir áður en vinna hefst.

    • Stöðvunartími vinnubílsins kann að vera lengri á blautu undirlagi en á þurru undirlagi. Hægt er að þurrka blauta hemla með því að aka hægt á jafnsléttu og stíga um leið létt á hemlafótstigið.

    • Við nauðhemlun á miklum hraða er hætta á að afturdekkin læsist. Slíkt skerðir stjórn á vinnubílnum.

    • Ekki snerta vélina á meðan hún er í gangi eða stuttu eftir að drepið er á vélinni þar sem hitastig þessara svæða getur valdið brunasárum.

    • Ekki skilja vinnubílinn eftir í gangi.

    • Áður en svæði stjórnanda er yfirgefið skal gera eftirfarandi:

      • Leggið vinnubílnum á jafnsléttu.

      • Færið stefnustöngina í HLUTLAUSA stöðu.

      • Setjið stöðuhemilinn á.

      • Drepið á vinnuvélinni og takið lykilinn úr.

      • Bíðið þar til hlutir á hreyfingu hafa stöðvast.

    • Ekki nota vinnubílinn þegar hætta er á eldingum.

    • Notið eingöngu aukabúnað og tengitæki sem samþykktur er af Toro® Company.

    Öryggi við akstur með marga farþega

    • Ekki fara yfir hámarksheildarþyngd vinnubílsins. Gera þarf ráð fyrir stjórnanda, farþegum og farþunga á palli við útreikning hámarksheildarþyngd vinnubílsins.

    • Farþegar mega eingöngu sitja í þar til ætluðu sæti. Farþegar mega aldrei sitja á farmpallinum.

    • Stjórnandi og farþegar skulu sitja í sæti sínu þegar vinnubíllinn er á ferð.

    • Viðbótarlengd vinnubílsins gerir snúningsradíusinn stærri og það þarf því að gera ráð fyrir meira plássi til að færa bílinn til.

    Öryggi í halla

    Note: Veltigrind með tveimur stoðum er í boði sem aukabúnaður fyrir þennan vinnubíl. Notið veltigrind ef vinna á nærri þverhnípi, vatni, á ósléttri jörð eða í brekku, þar sem hætta er á veltu. Hafið samband við viðurkenndan dreifingaraðila Toro til að fá frekari upplýsingar.

    Brekkur valda mikilli hættu á stjórnmissi eða veltu sem leitt getur til alvarlegra meiðsla eða dauða.

    • Skoðið vinnusvæðið til að ákvarða í hvaða brekkum er hægt að vinna á vinnubílnum og skipuleggið verklag og reglur fyrir vinnu í þeim brekkum. Beitið almennu hyggjuviti og sýnið góða dómgreind við þessa skoðun.

    • Ef stjórnanda finnst óþægilegt að vinna á vinnubílnum í halla skal viðkomandi sleppa því.

    • Tryggið að allar hreyfingar í halla séu hægar og jafnar. Breytið hvorki hraða né stefnu vinnubílsins skyndilega.

    • Forðist að aka vinnubílnum á blautu undirlagi. Hjólbarðar kunna að missa grip. Velta getur átt sér stað áður en hjólbarðar missa grip.

    • Akið beint upp og niður halla.

    • Ef vinnubíllinn byrjar að missa hraða á leið upp halla skal stíga hægt á hemlana og bakka svo rólega beint niður hallann.

    • Hættulegt getur verið að beygja þegar ekið er upp eða niður halla. Ef nauðsynlegt reynist að beygja í halla þarf að gera það rólega og sýna mikla aðgát.

    • Þungur farmur getur haft áhrif á stöðugleika í halla. Akið með léttari farm og hægar þegar ekið er í halla eða þegar þungamiðja farmsins er há. Festið farminn á pallinn til að koma í veg fyrir að hann hreyfist til. Sýnið sérstaka aðgát við flutning farms sem hreyfist auðveldlega til (t.d. vökva, grjót, sand o.s.frv).

    • Forðist að taka af stað, stöðva eða beygja í halla, sérstaklega með farm. Lengri tíma tekur að stöðva vinnubílinn þegar ekið er niður halla en þegar stöðvað er á jafnsléttu. Ef stöðva þarf vinnubílinn skal forðast skyndilegar hraðabreytingar. Þær geta valdið hættu á veltu. Ekki hemla skyndilega þegar bíllinn rennur aftur á bak þar sem það veldur hættu á að hann velti aftur fyrir sig.

    Öryggi við hleðslu og losun

    • Ekki skal fara yfir hámarksheildarþyngd vinnubílsins þegar farmur er á pallinum og/eða verið er að draga eftirvagn; sjá Tæknilýsing.

    • Dreifið farmi jafnt um pallinn til að auka stöðugleika og stjórn vinnubílsins.

    • Áður en losað er skal ganga úr skugga um að enginn sé fyrir aftan vinnubílinn.

    • Ekki losa farm af palli á meðan vinnubíllinn stendur þversum í halla. Breytingar á þyngdardreifingu geta skapað hættu á veltu.

    Notkun pallsins

    Pallinum lyft í sturtustöðu

    Viðvörun

    Pallur í hæstu stöðu getur dottið niður og valdið meiðslum á fólki sem vinnur undir honum.

    • Notið ávallt stífu til að halda pallinum uppi þegar unnið er undir honum.

    • Fjarlægið allt efni af pallinum áður en honum er lyft.

    Viðvörun

    Hætta er á veltu ef ekið er með pallinn uppi. Hætta er á að pallurinn skemmist ef ekið er með hann uppi.

    • Akið vinnubílnum með pallinn niðri.

    • Látið pallinn síga eftir að hann hefur verið tæmdur.

    Varúð

    Ef farmur er aftarlega á pallinum þegar klinkurnar eru losaðar er hætta á að pallurinn sturti óvænt og valdi meiðslum á nærstöddum.

    • Reynið að hafa farm á miðjum pallinum, ef því er við komið.

    • Haldið pallinum niðri og tryggið að enginn halli sér yfir pallinn eða standi fyrir aftan hann þegar klinkurnar eru losaðar.

    • Fjarlægið allan farm af pallinum áður en honum er lyft vegna viðhaldsvinnu.

    1. Togið stöngina vinstra megin, á pallinum innanverðum, í átt að stjórnanda og lyftið pallinum upp (Mynd 19).

      g034019
    2. Togið stífuna í rauf fyrir haldstöðu í sturtustöðu, til að festa pallinn áður en sturtað er af honum (Mynd 20).

      g034021

    Pallinum lyft í viðhaldsstöðu

    1. Togið stöngina vinstra megin, á pallinum innanverðum, í átt að stjórnanda og lyftið pallinum upp (Mynd 19).

    2. Togið stífuna í rauf fyrir haldstöðu í viðhaldsstöðu til að festa pallinn fyrir viðhald (Mynd 20).

    Pallurinn látinn síga

    Viðvörun

    Pallurinn getur verið þungur. Hendur og aðrir líkamshlutar geta kramist.

    Haldið höndum og öðrum líkamshlutum í öruggri fjarlægð þegar pallurinn er látinn síga niður.

    1. Lyftið pallinum svolítið með því að lyfta klinkuhandfanginu upp (Mynd 19).

    2. Togið stífuna út úr rauf fyrir haldstöðu (Mynd 20).

    3. Lækkið pallinn þar til klinkan læsist.

    Afturhlerinn opnaður

    1. Tryggið að pallurinn sé í neðstu stöðu og festur.

    2. Notið báðar hendur til að lyfta afturhleranum upp með því að taka í grópina ofarlega á afturhleranum (Mynd 21).

    3. Látið afturhlerann síga þar til hann flúttar við neðsta hluta pallsins (Mynd 21).

      g034022

    Afturhlera lokað

    Ef verið var að afferma laust efni, svo sem sand, hleðslusteina eða viðarkurl, af palli vinnubílsins er hugsanlegt að eitthvað af því efni hafi safnast fyrir á svæðinu í kringum lamir afturhlerans. Áður en afturhleranum er lokað skal gera eftirfarandi.

    1. Notið hendurnar til að fjarlægja sem allra mest af lausu efni af svæðinu í kringum lamirnar.

    2. Snúið afturhleranum í um það bil 45° horn (Mynd 22).

      g034023
    3. Snúið afturhleranum fram og til baka nokkrum sinnum með stuttum hristihreyfingum (Mynd 22).

      Note: Við það losnar efnið sem kann að hafa safnast fyrir á svæðinu í kringum lamirnar.

    4. Látið afturhlerann síga og kannið hvort eitthvað laust efni er enn á svæðinu í kringum lamirnar.

    5. Endurtakið skref 1 til og með 4þar til allt efni hefur verið fjarlægt af svæðinu í kringum lamirnar.

    6. Snúið afturhleranum í hring upp á við og lyftið afturhleranum upp í grópirnar á pallinum.

    Eftirlit með hleðslustöðu rafhlöðukerfis

    Skoðið hleðslustig rafhlöðu á skjánum; sjá Skjámynd.

    Áminningar um lága hleðslustöðu rafhlöðu

    Þegar of lítið er eftir á rafhlöðu (þ.e. minna en 5%) birtist viðvörun um að lítið sé eftir af rafhlöðu á skjánum. Þegar slík hleðslustaða birtist við notkun vinnubílsins skal aka honum á þar til gert hleðslusvæði og hlaða rafhlöðurnar; sjá Li-ion rafhlöður settar í hleðslu.

    Vinnubíllinn stöðvaður

    Important: Þegar vinnubíllinn er stöðvaður í halla skal nota aksturshemlana til að stöðva vinnubílinn og setja svo stöðuhemilinn á til að halda vinnubílnum kyrrum. Mótorinn kann að ofhitna eða rafhlöðurnar kunna að tæmast ef inngjöfin er notuð til að stöðva vinnubílinn í halla.

    1. Takið fótinn af inngjafarfótstiginu.

    2. Stígið hemlafótstigið hægt niður til að setja aksturshemilinn á þar til vinnubíllinn hefur stöðvast alveg.

      Note: Hemlunarfjarlægðin getur verið mislöng, allt eftir farmþunga og hraða.

    Pallurinn fermdur

    Fylgið eftirfarandi leiðbeiningum við fermingu palls og notkun vinnubílsins:

    • Takið mið af burðargetu vinnubílsins og takmarkið þyngd farms á pallinum í samræmi við það sem tilgreint er á Tæknilýsing og á merkimiða fyrir heildarþyngd vinnubílsins.

      Note: Tilgreind hámarksþyngd farms á aðeins við fyrir notkun á sléttu yfirborði.

    • Þegar vinnubíllinn er notaður á hæðóttu og ósléttu yfirborði þarf að minnka farmþyngdina á pallinum.

    • Þegar vinnubíllinn er notaður til að ferja háreist efni (með hárri þyngdarmiðju), svo sem múrsteinsstafla, palla- og girðingaefni eða áburðarpoka, þarf að minnka farmþyngdina á pallinum. Dreifið úr farminum til að lækka hann sem mest og gætið þess að farmurinn skerði ekki útsýnið aftur fyrir vinnubílinn við notkun.

    • Miðjustillið farminn á pallinum sem hér segir:

      • Dreifið þyngd farmsins jafnt á pallinum, frá einni hlið til annarar.

        Important: Ef þyngd farms á pallinum er öll öðrum megin er aukin hætta á að vinnubílnum hvolfi.

      • Dreifið farminum á pallinum jafnt frá framhlið af afturhlið.

        Important: Ef þyngd farms er mest fyrir aftan afturöxulinn er aukin hætta á að stjórnandi missi stjórn á vinnubílnum eða bílnum hvolfi, auk þess sem grip á framhjólbörðum verður minna.

    • Sýnið sérstaka aðgát þegar farmur sem inniheldur mjög stóra hluti er fluttur á pallinum, sérstaklega.

    • Þegar þess er kostur skal alltaf festa farminn tryggilega með ólum við pallinn, til að forðast að hann færist til.

    • Við flutninga á vökva skal sýna aðgát þegar vinnubílnum er ekið upp eða niður brekku, við skyndilegar hraðabreytingar eða við stöðvun, eða þegar ekið er yfir ójafnt yfirborð.

    Afkastageta pallsins er 0,28 m3. Magn (rúmtak) efnis sem setja má á pallinn án þess að fara yfir uppgefna burðargetu vinnubílsins getur verið mjög mismunandi, allt eftir eðlismassa efnisins.

    Upplýsingar um hámark mismunandi efna er að finna á eftirfarandi töflu:

    EfniEðlismassiHámarksburðargeta palls(á sléttu undirlagi)
    Möl, þurr1522 kg/m3Fullur
    Möl, blaut1922 kg/m3Fyllt að ¾
    Sandur, þurr 1442 kg/m3Fullur
    Sandur, blautur1922 kg/m3Fyllt að ¾
    Timbur721 kg/m3Fullur
    Börkur<721 kg/m3Fullur
    Mold, þjöppuð1602 kg/m3Fyllt að ¾ (um það bil)

    Eftir notkun

    Öryggi eftir notkun

    Almennt öryggi

    • Áður en svæði stjórnanda er yfirgefið skal gera eftirfarandi:

      • Leggið vinnubílnum á jafnsléttu.

      • Færið stefnustöngina í HLUTLAUSA stöðu.

      • Setjið stöðuhemilinn á.

      • Drepið á vinnuvélinni og takið lykilinn úr.

      • Bíðið þar til hlutir á hreyfingu hafa stöðvast.

    • Leyfið vinnubílnum að kólna áður en hann er stilltur, þjónustaður, þrifinn eða settur í geymslu.

    • Geymið ekki vinnubílinn nærri óvörðum loga, neistaflugi eða kveikiloga, á borð við vatnshitara eða önnur heimilistæki.

    • Haldið öllum hlutum vinnubílsins í góðu ásigkomulagi og tryggið að vélbúnaður sé vel hertur.

    • Haldið sætisbeltum við og þrífið eftir þörfum.

    • Skiptið um slitnar eða skemmdar merkingar og setjið nýjar í stað merkinga sem vantar.

    Öryggi tengt rafhlöðu og hleðslutæki

    Almennt

    • Notið einungis rafmagnssnúruna sem fylgdi með til að hlaða rafhlöðurnar.

    • Gangið úr skugga um að spennan sem notuð er í viðkomandi landi henti hleðslutækinu.

    • Þegar tengt er við rafveitu utan Bandaríkjanna skal nota millistykki á kló, ef með þarf, sem passar við innstungu á hverjum stað.

    • Ekki má hlaða vinnubílinn í rigningu eða bleytu.

    • Hætta er á eldsvoða, raflosti eða meiðslum þegar notaður er aukabúnaður sem Toro mælir ekki með eða selur.

    • Fylgið þessum leiðbeiningum og leiðbeiningum hvers þess búnaðar sem á að nota nærri hleðslutækinu til að draga úr hættu á sprengingu í rafhlöðu.

    • Ekki opna rafhlöðurnar.

    • Ef rafhlaða byrjar að leka skal forðast snertingu við vökvann. Ef til snertingar við vökva kemur skal skola svæðið með vatni og leita til læknis. Vökvi úr rafhlöðunni getur valdið ertingu eða brunasárum.

    • Leitið til viðurkennds dreifingaraðila til að þjónusta eða skipta um rafhlöðu.

    Þjálfun

    • Aldrei leyfa börnum eða óþjálfuðum einstaklingum að vinna á eða við vinnubílinn. Gildandi reglur á hverjum stað kunna að setja takmörk við aldur stjórnanda. Eigandinn ber ábyrgð á að þjálfa stjórnendur og vélvirkja.

    • Kynnið ykkur og fylgið öllum leiðbeiningum varðandi hleðslu vinnubílsins.

    Undirbúningur

    • Haldið nærstöddum og börnum í öruggri fjarlægð á meðan hleðsla stendur yfir.

    • Klæðist viðeigandi klæðnaði á meðan hleðsla stendur yfir, þar á meðal hlífðargleraugum, síðum buxum og góðum vinnuskóm með skrikvörn.

    • Drepið á vinnuvélinni og bíðið í 5 sekúndur, þangað til vinnuvélin hefur drepið á sér að fullu, áður en hleðsla er hafin. Ef þetta er ekki gert er hætta á neistahlaupi.

    • Tryggið að hleðsla fari fram á vel loftræstu svæði.

    • Lesið og fylgið öllum varúðarráðstöfunum fyrir hleðslu.

    • Hleðslutækið er eingöngu til notkunar á 100 og 240 VAC rafrásum og er búið jarðtengingarkló fyrir notkun með 120 VAC. Þegar notast er við 240 volta rafrásir þarf að fá rétta rafmagnssnúru hjá viðurkenndum dreifingaraðila Toro.

    • Notið einungis rafmagnssnúru sem er samþykkt af Toro.

    Notkun

    • Ekki snúa upp á rafmagnssnúruna eða kippa í hana til að taka hleðslutækið úr sambandi. Verjið snúruna fyrir hita, olíu og hvössum brúnum.

    • Tengið hleðslutækið beint við innstungu með jarðtengingu. Ekki hlaða með ójarðtengdri innstungu, ekki einu sinni með millistykki.

    • Ekki breyta meðfylgjandi rafmagnssnúru eða kló.

    • Forðist að missa verkfæri úr málmi nærri eða á rafhlöðuna; slíkt getur valdið neistamyndun eða skammhlaupi í rafmagnshlut sem leitt getur til sprengingar.

    • Fjarlægið málmhluti á borð við hringa, armbönd, hálsmen og úr þegar unnið er við Li-ion rafhlöðu. Li-ion rafhlaða getur myndað nægan straum til að valda alvarlegu brunasári.

    • Notið viðeigandi framlengingarsnúru.

    • Ef skemmdir verða á snúrunni á meðan hún er í sambandi skal taka hana úr sambandi við innstunguna og fá nýja rafmagnssnúru hjá viðurkenndum dreifingaraðila Toro.

    • Takið hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu þegar það er ekki í notkun, áður en það er flutt til eða áður en það er þjónustað.

    Viðhald og geymsla

    • Geymið vinnubílinn á þurrum og öruggum stað innandyra, sem óviðkomandi hafa ekki aðgang að.

    • Takið rafmagnssnúruna úr sambandi við innstunguna áður en viðhald eða þrif fara fram til að draga úr hættu á raflosti.

    • Haldið við eða skiptið um öryggis- og leiðbeiningarmerkingar, eftir þörfum.

    • Ekki nota skemmda snúru eða innstungu við hleðslu. Skiptið tafarlaust um skemmda snúru eða kló.

    • Ekki skal nota hleðslutækið eða rafmagnssnúruna ef skemmdir verða á slíkum búnaði. Farið þess í stað með búnaðinn til viðurkennds dreifingaraðila Toro.

    Vinnubíllinn fluttur

    • Sýnið aðgát þegar vinnubíllinn er settur á eða tekinn af eftirvagni eða palli.

    • Notið skábrautir í fullri breidd við að aka honum á eftirvagn eða palla.

    • Festið vinnubílinn tryggilega.

    Frekari upplýsingar um festingarstaði á vinnubílnum er að finna á Mynd 23Mynd 24.

    Note: Akið vinnubílnum á eftirvagn þannig að framhluti hans snúi fram. Ef það er ekki hægt skal binda vélarhlífina fasta við grindina með stroffu eða taka hana af og flytja og festa aðskilið. Að öðrum kosti er hætta á að vélarhlífin fjúki af við flutninga.

    Varúð

    Ef sæti eru laus er hætta á að þau detti af vinnubílnum og eftirvagninum þegar vinnubíllinn er fluttur, eða sæti lendi á öðrum vinnuvélum eða myndi tálma á vegum.

    Fjarlægið sætin, eða gangið úr skugga um að sæti hafi verið fest tryggilega með snúningspinnum.

    g319238
    g319239

    Vinnubíllinn dreginn

    Í neyðartilvikum er hægt að draga vinnubílinn stuttar vegalengdir; þetta er hins vegar ekki hefðbundin notkun.

    Viðvörun

    Hætta er á stjórnmissi þegar dregið er á of miklum hraða. Slíkt getur leitt til meiðsla á fólki.

    Aldrei draga vinnubíl hraðar en 8 km/klst.

    Dráttur vinnubílsins krefst aðkomu tveggja einstaklinga. Ef flytja þarf vinnubílinn um langan veg skal nota vörubíl eða eftirvagn; sjá Dráttur eftirvagns.

    1. Drepið á vinnuvélinni og takið lykilinn úr.

      Important: Rafmagnskerfið getur orðið fyrir skemmdum ef vinnubíllinn er dreginn á meðan svissað er Á.

    2. Festið dráttartaug í beislið framan á grind vinnubílsins (Mynd 23).

    3. Takið stöðuhemilinn af.

    Dráttur eftirvagns

    Þessi vinnubíll getur dregið eftirvagna. Dráttarkrókar eru í boði fyrir vinnubílinn. Hafið samband við viðurkenndan dreifingaraðila Toro til að fá frekari upplýsingar.

    Ekki ofhlaða vinnubílinn eða eftirvagninn þegar ekið er með farm eða eftirvagn (tengitæki) í eftirdragi. Ofhleðsla vinnubílsins eða eftirvagnsins getur skert afkastagetu eða valdið skemmdum á hemlum, öxli, mótor, sambyggðum gírkassa og drifi, stýri, fjöðrun, undirvagni eða hjólbörðum.

    Hlaðið eftirvagn alltaf þannig að 60% farmsins liggi á framhluta eftirvagnsins. Þetta veltir um 10% af heildarþyngd eftirvagnsins yfir á dráttarkrók vinnubílsins.

    Til að tryggja viðunandi hemlun og grip skal alltaf ferma pallinn þegar eftirvagn er í notkun. Ekki skal fara yfir heildarþyngdarmörk fyrir pall og eftirvagn.

    Forðist að leggja vinnubíl með eftirvagni í brekku. Ef ekki verður hjá því komist að leggja í halla skal setja stöðuhemilinn á og skorða hjólbarða eftirvagnsins.

    Viðhald á Li-ion rafhlöðum

    Viðvörun

    Rafhlöðurnar eru háspennurafhlöður sem geta valdið brunasárum eða raflosti.

    • Ekki reyna að opna rafhlöðurnar.

    • Gætið fyllstu varúðar við meðhöndlun rafhlöðu með rofið ytra byrði.

    • Notið eingöngu hleðslutæki sem hannað er fyrir rafhlöðurnar.

    Fylgið eftirfarandi leiðbeiningum til að ná hámarksendingu og -notkun úr rafhlöðunum:

    • Ekki opna rafhlöðuna. Rafhlaðan inniheldur enga hluti sem sinna þarf viðhaldi á. Ábyrgðin fellur úr gildi ef pakkinn er opnaður. Rafhlöðurnar eru varðar með fiktviðvörunarbúnaði.

    • Geymið/leggið vinnubílnum í hreinni, þurri vélageymslu eða geymslusvæði í vari fyrir sólarljósi, hitagjöfum, rigningu og bleytu.Frekari upplýsingar um æskilegt hitastig við geymslu er að finna í töflunni hér á eftir.

      Important: Hiti utan marka skemmir rafhlöðurnar.Mikill hiti við geymslu, sérstaklega þegar hleðslustaða er há, dregur úr endingu rafhlaðanna.

      Kröfur um hitastig fyrir geymslu

      GeymsluskilyrðiKröfur um hitastig
      Eðlileg geymsluskilyrði-20 til 45 °C
      Mikill hiti – 1 mánuður eða minna45 til 60 °C
      Mikill kuldi – 3 mánuðir eða minna-30 til -20 °C
    • Ef vinnubíllinn er geymdur í meira en 10 daga þarf að tryggja að hann sé geymdur á svölum og þurrum stað, fjarri sólarljósi, rigningu, bleytu og með minnst 50% hleðslu.

    • Svissið Á til að skoða hleðslustöðuna. Svissið AF þegar lokið er við að skoða hleðslustöðuna til að viðhalda afköstum við hleðslu.

      Þessi vinnubíll er búinn sjálfvirkum stöðvunarbúnaði til að vernda og viðhalda afkastagetu og rúmtaki rafhlaðanna.

      Sjálfvirk slokknun á sér stað í eftirfarandi tilvikum ef svissað er Á í lengri tíma:

      • Sjálfvirk slokknun á sér stað við hleðslu þegar hleðslustraumurinn fer undir 3 A (100% hleðsla) í 5 mínútur.

      • Sjálfvirk slokknun verður virk 30 mínútum eftir hefðbundið aðgerðarleysi. Hafið samband við viðurkenndan dreifingaraðila Toro ef þörf þykir að breyta tíma sjálfvirkrar slokknunar.

    Flutningur á Li-ion rafhlöðum

    Samgönguráðuneyti Bandaríkjanna og alþjóðleg flutningsyfirvöld krefjast þess að Li-ion rafhlöður séu fluttar í sérstökum pakkningum og eingöngu með flutningatækjum sem eru vottuð fyrir slíkan flutning. Í Bandaríkjunum má flytja rafhlöðu uppsetta í vinnuvélinni sem rafknúinn búnað, í samræmi við reglugerðir. Samgönguráðuneyti Bandaríkjanna eða önnur viðeigandi opinber stofnun annarra landa veitir nákvæmar upplýsingar um reglugerðir varðandi flutning rafhlaðanna eða vinnuvélarinnar með rafhlöðunum í.

    Hægt er að fá frekari upplýsingar um flutning á rafhlöðum hjá viðurkenndum dreifingaraðila Toro.

    Virkni Li-ion hleðslutækis

    Tengst við rafmagn

    Hleðslutækið er með þriggja pinna kló með jarðtengingu (gerð B) til að draga úr hættu á raflosti. Ef klóin passar ekki í vegginnstunguna eru aðrar jarðtengdar klær í boði; hafið samband við viðurkenndan dreifingaraðila Toro.

    Ekki breyta hleðslutækinu eða kló rafmagnssnúrunnar á nokkurn hátt.

    Sjá Mynd 25 varðandi kröfur um aflgjafa.

    decal140-4590

    Hætta

    Snerting við vatn meðan á hleðslu stendur getur valdið raflosti og meiðslum eða dauða.

    • Ekki meðhöndla klóna eða hleðslutækið með blautum höndum eða standandi í vatni.

    • Ekki má hlaða rafhlöðurnar í rigningu eða bleytu.

    Important: Leitið reglulega eftir götum eða sprungum í einangrun rafmagnssnúrunnar. Ekki nota skemmda snúru. Ekki láta snúruna liggja í vatni eða blautu grasi.

    1. Tengið snúrina í hleðsluinnstungu vinnubílsins.

      Viðvörun

      Skemmd hleðslusnúra getur valdið raflosti eða eldhættu.

      Skoðið rafmagnssnúruna vandlega áður en hleðslutækið er notað. Ef snúran er skemmd skal ekki nota hleðslutækið fyrr en búið er að útvega nýja snúru.

    2. Stingið kló rafmagnssnúrunnar í jarðtengda rafmagnsinnstungu.

    Li-ion rafhlöður settar í hleðslu

    Important: Hlaðið rafhlöðurnar eingöngu innan ráðlagðs hitasviðs. Frekari upplýsingar um ráðlagt hitasvið eru í eftirfarandi töflu:

    Note: Hleðslutækið virkar ekki við umhverfishitastig sem fer undir eða yfir lágmarks- og hámarkshitastigin sem sýnd eru í eftirfarandi töflu.

    Ráðlagt hitasvið fyrir hleðslu

    Hleðslusvið5 ° til 45 °C
    Hleðslusvið við lágan hita (minni straumur)-10 ° til 5 °C
    Hleðslusvið við háan hita (minni straumur)45 til 60 °C

    Eftirlit með hleðslu og bilanagreining

    Svissið Á til að skoða núverandi hleðslustöðu. Svissið AF þegar lokið er við að skoða hleðslustöðuna til að viðhalda afköstum hleðsluferlisins.

    Note: Skjárinn sýnir skilaboð á meðan hleðslu stendur. Flest eru kerfisbundin.

    Ef bilun kemur upp blikkar gult villugaumljós eða logar ljósrautt. Villuboð birtast á skjánum, einn tölustafur í einu, með forskeytinu E eða F (t.d. E-0-1-1).

    Upplýsingar um hvernig á að laga villu er að finna í . Ef lausn á vandamálinu er ekki að finna þar skal leita til viðurkennds dreifingaraðila Toro.

    Hleðslu lokið

    Þegar hleðslu er lokið logar grænt hleðsluljós rafgeymisins og gaumljós hleðslufrálags slokknar.

    1. Takið snúruna úr sambandi við hleðsluinnstungu vinnubílsins.

    2. Geymið snúruna á öruggum stað.

    3. Gangsetjið vinnubílinn.

    4. Athugið hleðslustöðuna; sjá Skjámynd.

    Viðhald

    Note: Verklagið í þessum kafla sýnir vinnubíl með plastpall og körfusæti. Upplýsingar um verklag fyrir tengibúnað af annarri gerð er að finna í viðhaldskafla (ef slíkt á við) leiðbeininga um uppsetningu. Farið á www.Toro.com til að fá leiðbeiningar eða skannið inn QR-kóða tengitækisins (þegar slíkt á við).

    Öryggi við viðhaldsvinnu

    • Ekki leyfa óþjálfuðu starfsfólki að þjónusta vinnubílinn.

    • Áður en svæði stjórnanda er yfirgefið skal gera eftirfarandi:

      • Leggið vinnubílnum á jafnsléttu.

      • Færið stefnustöngina í HLUTLAUSA stöðu.

      • Setjið stöðuhemilinn á.

      • Drepið á vinnuvélinni og takið lykilinn úr.

      • Bíðið þar til hlutir á hreyfingu hafa stöðvast.

    • Leyfið vinnubílnum að kólna áður en hann er stilltur, þjónustaður, þrifinn eða settur í geymslu.

    • Setjið alltaf búkka undir vinnubílinn þegar unnið er undir honum.

    • Ekki vinna undir palli sem hefur verið lyft án þess að nota viðeigandi öryggisstífu.

    • Ekki hlaða rafgeyminn á meðan unnið er við vinnubílinn.

    • Tryggið að allur vélbúnaður sé vel hertur til að viðhalda góðu ástandi vinnubílsins.

    • Til að draga úr eldhættu skal hreinsa smurfeiti, gras, lauf og óhreinindi af vinnubílnum.

    • Ekki sinna viðhaldi með vélina gangi, ef því verður við komið. Haldið öruggri fjarlægð frá hlutum á hreyfingu.

    • Ef vélin þarf að vera í gangi við stillingu skal halda höndum, fótum, fatnaði og öðrum líkamshlutum fjarri hlutum á hreyfingu. Haldið nærstöddum í öruggri fjarlægð frá vinnubílnum.

    • Kannið virkni stöðuhemilsins, eins og sagt er til um í viðhaldsáætluninni og stillið hann og þjónustið eftir þörfum.

    • Haldið öllum hlutum vinnubílsins í góðu ásigkomulagi og tryggið að vélbúnaður sé rétt hertur. Skiptið um slitnar eða skemmdar merkingar.

    • Aldrei breyta ætlaðri virkni öryggisbúnaðar eða skerða þá vörn sem öryggisbúnaður veitir.

    • Ef þörf er á meiriháttar viðgerðum eða aðstoð skal hafa samband við viðurkenndan þjónustu- og söluaðila.

    • Hvers kyns breytingar á vinnubílnum kunna að hafa áhrif á virkni hans, afköst eða endingu, auk þess sem hætta skapast á meiðslum á fólki eða dauða. Slík notkun getur fellt úr gildi vöruábyrgð Toro® Company.

    Ráðlögð viðhaldsáætlun/-áætlanir

    Tíðni viðhaldsþjónustuViðhaldsferli
    Eftir fyrstu 100 klukkustundirnar
  • Fylgið leiðbeiningum um tilkeyrslu nýrra vinnubíla.
  • Fyrir hverja notkun eða daglega
  • Leitið eftir sliti, skurðum eða öðrum skemmdum á sætisbeltunum. Skiptið um sætisbelti ef einhver hluti þeirra virkar ekki rétt.
  • Kannið þrýsting í hjólbörðum.
  • Athugið hæð hemlavökvans.Kannið hæð hemlavökva áður en mótorinn er notaður í fyrsta sinn.
  • Þrífið sláttuvélina.
  • Á 100 klukkustunda fresti
  • Athugið ástand hjólbarða og felga.
  • Herðið felgurærnar.
  • Athugið hvort slit eða skemmdir sjást á stýri eða íhlutum fjöðrunar.
  • Athugið hjólhalla og innskeifni framhjóla.
  • Athugið hæð vökva í sambyggðum gírkassa og drifi.
  • Athugið sambyggða gírkassann og drifið m.t.t. leka.
  • Skoðið hemlana.
  • Á 300 klukkustunda fresti
  • Smyrjið legur framhjóla.
  • Á 400 klukkustunda fresti
  • Skiptið um bremsuklossa hemla og stöðuhemils.
  • Á 800 klukkustunda fresti
  • Skiptið um vökva í sambyggðum gírkassa og drifi.
  • Á 1.000 klukkustunda fresti
  • Skiptið um hemlavökva.
  • Note: Farið á www.Toro.com og leitið að viðkomandi vinnubíl í gegnum handbókartengilinn á heimasíðunni til að sækja eintak af teikningum rafkerfisins.

    Viðvörun

    Ef viðeigandi viðhaldi er ekki sinnt á vinnubílnum er hætta á ótímabærri bilun í kerfum bílsins, sem sett getur stjórnanda eða nærstadda í hættu.

    Sinnið reglulegu viðhaldi á vinnubílnum og haldið honum í góðu ásigkomulagi, eins sagt er til um í þessum leiðbeiningum.

    Gátlisti fyrir daglegt viðhald

    Afritið þessa blaðsíðu til að skrá reglubundið viðhald.

    ViðhaldsatriðiVika:
    MánudagurÞriðjudagurMiðvikudagurFimmtudagurFöstudagurLaugardagurSunnudagur
    Athugið virkni aksturshemils og stöðuhemils.       
    Athugið virkni gírskiptingar/hlutlauss gírs.       
    Athugið hæð hemlavökvans.       
    Hlustið eftir óvenjulegum vinnsluhljóðum.       
    Kannið þrýsting í hjólbörðum.       
    Leitið eftir leka.       
    Athugið virkni verkfæris.       
    Athugið virkni inngjafarinnar.       
    Lagfærið lakk sem hefur flagnað eða skemmst.       
    Þrífið sláttuvélina.       

    Viðhald vinnubílsins við sérstök vinnuskilyrði

    Important: Ef vinnubíllinn er notaður við einhverjar af þeim aðstæðum sem taldar eru upp hér að neðan skal sinna viðhaldi helmingi oftar:

    • Vinna í eyðimörk

    • Vinna við köld skilyrði – undir 10°C

    • Dráttur eftirvagns

    • Mikil notkun við rykugar aðstæður

    • Byggingarvinna

    • Eftir langa notkun í aur, sandi, vatni eða öðrum álíka óhreinindum skal gera eftirfarandi:

      • Láta skoða og hreinsa hemlana svo fljótt sem auðið er. Þetta kemur í veg fyrir að sverfandi efni valdi óeðlilegu sliti.

      • Þrífið vinnubílinn með vatni eingöngu eða með mildu hreinsiefni.

        Important: Ekki nota ísalt vatn eða hreinsað vatn til að þrífa vinnubílinn.

    Undirbúningur fyrir viðhald

    Viðvörun

    Lyftið pallinum áður en viðhaldsvinnu eða viðgerðum er sinnt. Hækkaður pallur getur fallið niður og skaðað starfsfólk sem er að störfum undir honum.

    • Notið ávallt stífu til að halda pallinum uppi áðu en unnið er undir honum.

    • Fjarlægið allt efni af pallinum áður en unnið er undir pallinum.

    Undirbúningur vinnubíls fyrir viðhald

    1. Leggið vinnubílnum á jafnsléttu.

    2. Færið stefnustöngina í HLUTLAUSA stöðu.

    3. Setjið stöðuhemilinn á.

    4. Drepið á vinnuvélinni og takið lykilinn úr.

    5. Lyftið pallinum og látið hann síga.

    Vinnuvélinni lyft

    Hætta

    Þegar tjakkur er í notkun getur vinnubíllinn verið óstöðugur. Vinnubíllinn gæti runnið af tjakknum og valdið slysum á fólki sem er undir bílnum.

    • Aldrei má gangsetja bílinn á meðan hann er á tjakki.

    • Takið lykilinn alltaf úr svissinum áður en vinnubíllinn er yfirgefinn.

    • Skorðið hjólbarðana þegar stutt er við vinnubílinn með lyftibúnað.

    • Notið tjakkstanda til að styðja við vinnubílinn þegar honum hefur verið lyft.

    Important: Í hvert sinn sem vinnubíllinn er gangsettur vegna reglubundins viðhalds og/eða bilanagreininga skal gæta þess að afturhjól vinnubílsins séu í 25 mm fjarlægð frá jörðu og að afturöxull sé studdur með tjakkstöndum.

    • Lyftipunktarnir framan á vinnubílnum eru staðsettir framan á grindinni, á bak við dráttarbeislið (Mynd 26).

      g319293
    • Lyftipunktarnir aftan á vinnubílnum eru staðsettir undir öxlinum (Mynd 27).

    g319294

    Vélarhlíf opnuð

    Vélarhlíf lyft

    1. Lyftið handfanginu á gúmmíklinkunum sitt hvorum megin við vélarhlífina upp (Mynd 28).

      g034045
    2. Lyftið hlífinni.

    Vélarhlíf lokað

    1. Látið vélarhlífina síga gætilega.

    2. Festið vélarhlífina með því að láta gúmmíklinkurnar flútta við klinkufestingarnar sitt hvorum megin við vélarhlífina (Mynd 28).

    Sætissamstæðu lyft og hún látið síga

    Til að lyfta sætissamstæðunni er henni ýtt fram á við þar til hún hvílir á stýrinu (Mynd 29).

    Sætissamstæðan er látin síga með því að ýta henni aftur á bak þar til hún er komin aftur í upphaflega stöðu (Mynd 29).

    g190066

    Djúpsæti fjarlægt

    1. Ýtið sætissamstæðunni fram á við, í lyfta stöðu (Mynd 29).

    2. Rennið sætissamstæðunni til hliðar, út af pinnunum, og lyftið henni upp (Mynd 30).

      g190187

    Uppsetning á djúpsæti

    Rennið sætissamstæðunni upp á pinnana og látið hana síga (Mynd 31).

    g190186

    Sessa fjarlægð

    1. Ýtið sessunni fram á við, í efstu stöðu.

    2. Rennið sessunni til hliðar, út af pinnunum og lyftið henni upp (Mynd 32).

      g237191

    Nýrri sessu komið fyrir

    Rennið sessunni á pinnana og lækkið sessuna niður (Mynd 33).

    g237190

    Smurning

    Legur framhjóla smurðar

    Tíðni viðhaldsþjónustuViðhaldsferli
    Á 300 klukkustunda fresti
  • Smyrjið legur framhjóla.
  • Tilgreind smurfeiti: Mobilgrease XHP™-222

    Hjólnöf og snúður fjarlægð

    1. Lyftið vinnubílnum að framan og setjið tjakkstanda undir framhliðina.

    2. Fjarlægið felgurærnar fjórar sem festa hjólið við hjólnöfina (Mynd 34).

      g321364
    3. Fjarlægið kragaboltana (⅜ x ¾ to.) sem halda festingunni fyrir hemlasamstæðuna fastri við drifið og skiljið hemilinn frá drifinu (Mynd 35).

      Note: Setjið stoðir undir hemlasamstæðuna áður en lengra er haldið.

      g321363
    4. Fjarlægið rykhlífina af hjólnöfinni (Mynd 36).

      g192346
    5. Fjarlægið klofsplittið og festiróna af drifinu og drifrónni (Mynd 36).

    6. Fjarlægið drifróna úr drifinu og skiljið hjólnöf og snúðsamstæðu frá drifinu (Mynd 36 og Mynd 37).

      g192347
    7. Þurrkið vel af drifinu með klúti.

    8. Endurtakið skref 1 til og með7 fyrir hjólnöfina og snúðinn á hinni hlið vinnubílsins.

    Hjólalegur smurðar

    1. Fjarlægið utanáliggjandi legu og legugróp af hjólnöfinni (Mynd 38).

      g033050
    2. Fjarlægið þéttið úr legu að innanverðu úr hjólnöfinni (Mynd 38).

    3. Þurrkið vel af þéttinu og leitið eftir sliti eða skemmdum á því.

      Note: Notið ekki leysiefni til að hreinsa þéttið. Ef þéttið er slitið eða skemmt skal skipta um það.

    4. Hreinsið legurnar og legugrópirnar og skoðið íhlutina til að leita eftir sliti eða skemmdum.

      Note: Skiptið um slitna eða skemmda íhluti. Gangið úr skugga um að legurnar og grópirnar séu hreinar og þurrar.

    5. Hreinsið alla feiti, óhreinindi og laust efni úr holrýminu í hjólnöfinni (Mynd 38).

    6. Setjið tilgreinda smurfeiti í legurnar.

    7. Fyllið holrýmið í hjólnöfinni sem nemur um 50 til 80% af tilgreindu magni smurfeiti (Mynd 38).

    8. Setjið leguna að innanverðu í grópina í hjólnöfinni innanverðri og setjið þéttið á (Mynd 38).

    9. Endurtakið skref 1 til og með 8 fyrir legurnar í hinni hjólnöfinni.

    Hjólnöf og snúður sett upp

    1. Berið þunnt lag af tilgreindri smurfeiti á drifið (Mynd 39).

      g192344
    2. Setjið hjólnöf og snúð upp á drifið, með snúðinn að innanverðu (Mynd 39).

    3. Setjið legu að utanverðu upp á drifið og komið legunni fyrir í grópinni að utanverðu (Mynd 39).

    4. Setjið flipaskinnuna upp á drifið (Mynd 39).

    5. Skrúfið drifróna á drifið og herðið hana í 15 N∙m, en snúið um leið hjólnöfinni til að legan fari á réttan stað (Mynd 39).

    6. Losið drifróna svolítið, eða þar til hjólnöfin snýst hindrunarlaust.

    7. Herðið drifróna í 170 til 225 N·m.

    8. Setjið festiróna yfir róna og athugið hvort raufin í festirónni og gatið fyrir klofsplittið í drifinu flútta (Mynd 40).

      Note: Ef raufin í festirónni flúttar ekki við gatið á drifinu skal herða drifróna þar til raufin og gatið flútta, að hámarki að 226 N·m á rónni.

      g192345
    9. Setjið klofsplittið í og sveigið hvorn legg utan um festiróna (Mynd 40).

    10. Setjið rykhlífina á hjólnöfina (Mynd 40).

    11. Endurtakið skref 1 til og með10 fyrir hjólnöfina og snúðinn á hinni hlið vinnubílsins.

    Uppsetning hemla og hjóla

    1. Hreinsið kragaboltana tvo (⅜ x ¾ to.) og berið lag af miðlungssterku gengjulími á skrúfganga boltanna.

    2. Gangið úr skugga um að hemlaklossarnir sitt hvorum megin við snúðinn (Mynd 35) og götin í festingu fyrir klafann flútti við göt hemlafestingarinnar í drifgrindinni (Mynd 39).

    3. Festið festinguna fyrir klafann við drifgrindina (Mynd 35) með tveimur kragaboltum (⅜ x ¾ to.).

      Herðið kragaboltana tvo í 47 til 54 N∙m (35 til 40 ft-lb).

    4. Gangið úr skugga um að götin á felgunni flútti við pinnana á hjólnöfinni og setjið felguna á hjólnöfina, þannig að ventilleggurinn vísi út á við (Mynd 34).

      Note: Gangið úr skugga um að uppsetningarflötur hjólsins flútti við hjólnöfina.

    5. Festið hjólið við hjólnöfina með felgurónum (Mynd 34).

      Herðið felgurærnar í 108 til 122 N m (80 til 90 ft-lb).

    6. Endurtakið skref 1 til og með 5 fyrir hemlana og hjólið á hinni hlið vinnubílsins.

    Viðhald rafkerfis

    Öryggi tengt rafkerfi

    • Takið rafmagnssnúruna úr sambandi áður en rafgeymirinn er tengdur eða aftengdur.

    • Klæðist hlífðarfatnaði og notið einangruð verkfæri. Aftengið rafgeyminn áður en gert er við vinnubílinn. Aftengið mínusskautið fyrst og plússkautið síðast. Tengið plússkautið fyrst og mínusskautið síðast.

    Rafhlöður aftengdar

    1. Rennið skauthlífinni af mínusskauti (-) rafhlöðunnar á fremri rafhlöðusamstæðunni. (Mynd 41).

      g322757
    2. Fjarlægið sjálflæsandi róna og neikvæða (-) rafgeymakapalinn af rafhlöðuskautinu (Mynd 42).

      g322758

    Tenging rafhlaða

    1. Notið sjálflæsandi róna til að festa neikvæða (-) rafhlöðukapalinn við rafhlöðuskautið (Mynd 42).

    2. Rennið skauthlífinni á mínusskaut (-) rafhlöðunnar. (Mynd 42).

    Skipt um öryggi

    Rafmagnskerfið hefur sex öryggi. Aðrar raufir má nota eftir þörfum.

    Öryggið fyrir skjáinn (2 A) er framarlega í vinnubílnum undir vélarhlífinni (Mynd 43).

    g320397

    12 V og 48 V öryggin eru undir sætissamstæðunni (Mynd 44).

    g377987

    48 V öryggi

    Straumur frá rafveitu10 A
    Lyftusett (aukabúnaður) – opin rauf15 A
    Rafliði20 A
    Flauta20 A
    Skjámynd2 A

    12 V öryggi

    USB-innstunga5 A
    Aðalljós10 A
    Rafmagn15 A

    Viðhald aðalljósa

    Skipt um aðalljós

    1. Aftengið rafhlöðurnar; sjá Rafhlöður aftengdar.

    2. Opnið vélarhlífina.

    3. Aftengið raftengi leiðsluknippis frá tengi ljósasamstæðunnar (Mynd 45).

      g319306
    4. Fjarlægið smellurnar sem festa aðalljósið við festingu fyrir aðalljós (Mynd 45).

      Note: Geymið alla íhluti fyrir uppsetningu á nýju aðalljósi.

    5. Fjarlægið aðalljósasamstæðuna með því að færa hana fram á við, gegnum opið á framstuðaranum (Mynd 45).

    6. Setjið nýja aðalljósið upp gegnum opið á stuðaranum (Mynd 45).

      Note: Gangið úr skugga um að stillistoðirnar flútti við götin í festingunni á bak við stuðarann.

    7. Festið aðalljósasamstæðuna með smellunum sem voru fjarlægðar í skrefi 4.

    8. Tengið rafmagnstengi leiðsluknippis við tengið á ljósasamstæðunni (Mynd 45).

    9. Stillið aðalljósin þannig að ljóskeilan beinist á æskilegan stað. Frekari upplýsingar eru í Stilling aðalljósa.

    Stilling aðalljósa

    Notið eftirfarandi aðferð til að stilla stöðu aðalljósanna í hvert sinn sem skipt er um aðalljósasamstæðuna eða hún er fjarlægð.

    1. Leggið vinnubílnum á jafnsléttu með aðalljósin í um það bil 7,6 m fjarlægð frá vegg (Mynd 46).

    2. Mælið fjarlægðina frá gólfi að miðju aðalljósanna og setjið merki á vegginn í þeirri hæð.

    3. Snúið svissinum í KVEIKTA stöðu og kveikið á aðalljósunum.

    4. Gefið gaum að því hvar á veggnum aðalljósin lenda.

      Skærasti hluti aðalljóskeilunnar ætti að vera 20 cm fyrir neðan merkið á veggnum (Mynd 46).

      g298100
    5. Snúið stilliskrúfunum (Mynd 45) aftan á aðalljósasamstæðunni til að snúa samstæðunni og stilla stöðu kastljósgeislans.

    6. Tengið rafhlöðurnar og lokið vélarhlífinni; sjá Tenging rafhlaða.

    Rafhlöðurnar þjónustaðar

    Note: Vinnubíllinn er búin fjórum Li-ion rafhlöðum.

    Fargið eða endurvinnið Li-ion rafhlöður í samræmi við staðbundnar reglur og landslög. Ef rafhlaða krefst þjónustu skal leita aðstoðar viðurkennds dreifingaraðila Toro.

    Eini hluti rafhlöðunnar sem notandi getur sinnt viðhaldi á eru merkingarnar. Ábyrgðin fellur úr gildi ef reynt er að opna rafhlöðu. Ef vandamál kemur upp með rafhlöðu skal leita aðstoðar hjá viðurkenndum dreifingaraðila Toro.

    Viðhald hleðslutækisins

    Important: Rafmagnsviðgerðir skulu eingöngu framkvæmdar hjá viðurkenndum dreifingaraðila Toro.

    Stjórnandinn getur sinnt litlu öðru viðhaldi en að verja hleðslutækið gegn skemmdum og veðri.

    Viðhald hleðslutækissnúranna

    • Hreinsið snúrurnar með rökum klút eftir hverja notkun.

    • Vindið snúrurnar upp þegar þær eru ekki í notkun.

    • Leitið reglulega eftir skemmdum á snúrunum og skiptið um þær þegar með þarf með varahlutum sem samþykktir eru af Toro.

    Viðhald drifkerfis

    Viðhald hjólbarðanna

    Tíðni viðhaldsþjónustuViðhaldsferli
    Á 100 klukkustunda fresti
  • Athugið ástand hjólbarða og felga.
  • Herðið felgurærnar.
    1. Athugið hvort slit eða skemmdir sjást á hjólbörðum og felgum.

      Note: Árekstrar sem kunna að verða við notkun vinnubílsins, líkt og þegar ekið er á gangstéttarbrúnir, geta valdið skemmdum á hjólbörðum eða felgum og raskað hjólastillingum. Skoðið því ástand hjólbarða eftir slíka árekstra.

    2. Herðið felgurærnar í 108 til 122 N∙m.

    Skoðun á stýri og íhlutum fjöðrunar

    Tíðni viðhaldsþjónustuViðhaldsferli
    Á 100 klukkustunda fresti
  • Athugið hvort slit eða skemmdir sjást á stýri eða íhlutum fjöðrunar.
  • Hafið stýrið í miðlægri stöðu (Mynd 47) og snúið því til vinstri eða hægri. Ef stýrinu er snúið meira en 13 mm til vinstri eða hægri og hjólbarðar snúast ekki skal skoða eftirfarandi íhluti stýris og fjöðrunar til að ganga úr skugga um að þeir séu ekki slitnir eða skemmdir:

    • Stýrisskaft í samskeytalið stýrisstangar

      Important: Athugið ástand og öryggi þéttis í pinnastönginni (Mynd 48).

    • Millistangir í stýrisstangarsamstæðu

    g320398
    g313576

    Stilling framhjóla

    Tíðni viðhaldsþjónustuViðhaldsferli
    Á 100 klukkustunda fresti
  • Athugið hjólhalla og innskeifni framhjóla.
  • Undirbúningur fyrir stillingu hjólhalla og innskeifni

    1. Kannið þrýsting í hjólbörðum til að ganga úr skugga um að framhjól séu fyllt að 0,82 bar.

    2. Stjórnandi vinnubílsins skal sitja í sætinu, að öðrum kosti skal setja þyngd í sætið sem nemur þyngd þess sem á að aka bílnum. Stjórnandi vinnubílsins, eða jafngild þyngd, verður að vera í sætinu á meðan þessi stilling er framkvæmd.

    3. Látið vinnubílinn renna beint aftur á bak á jafnsléttu um 2 til 3 metra og síðan beint áfram að upphafsstaðsetningu. Þannig nær fjöðrunin að komast í notkunarstöðu.

    Stilling hjólhalla

    Verkfæri sem eigandi útvegar: skrúflykill, Toro-íhlutur nr. 132-5069. Frekari upplýsingar fást hjá viðurkenndum dreifingaraðila Toro.

    Important: Stillið hjólhallann aðeins ef það á að nota tengitæki að framan eða ef hjólbarðarnir eru mismikið slitnir.

    1. Skoðið hjólhallastillingu á hverju hjóli. Stillingin ætti að vera eins nærri hlutlausu (núllstillingu) og unnt er.

      Note: Hjólbarðana skal stilla þannig að þeir nái jafnri snertingu við jörð, til að minnka ójafnt slit.

    2. Ef hjólhalli er ekki réttur skal nota skrúflykil til að snúa kraganum á höggdeyfinum og stilla hjólið rétt (Mynd 49).

      g033218

    Innskeifni framhjóla stillt

    Important: Áður en innskeifni er stillt skal ganga úr skugga um að stilling hjólhalla sé eins hlutlaus og unnt er. Frekari upplýsingar eru í Stilling hjólhalla.

    1. Mælið fjarlægðina á milli framhjólanna við öxulhæð, bæði framan og aftan á framhjólunum (Mynd 50).

      g009235
    2. Ef mæligildin eru ekki á milli 0 og 6 mm skal losa festirærnar yst á millistöngunum (Mynd 51).

      g033219
    3. Snúið báðum millistöngunum til að færa framhlið hjólbarðans inn eða út á við.

    4. Herðið festiró tengistangarinnar þegar stillingin er rétt.

    5. Gangið úr skugga um að stýrið hreyfist alla leið í báðar áttir.

    Athugun á hæð vökva í sambyggðum gírkassa og drifi

    Tíðni viðhaldsþjónustuViðhaldsferli
    Á 100 klukkustunda fresti
  • Athugið hæð vökva í sambyggðum gírkassa og drifi.
    1. Leggið vinnubílnum á jafnsléttu.

    2. Setjið stöðuhemilinn á.

    3. Drepið á mótornum og takið lykilinn úr.

    4. Fjarlægið áfyllingartappann af sambyggða gírkassanum og drifinu (Mynd 52).

      Note: Vökvahæðin ætti að nema við neðsta hluta áfyllingartappans.

      g217835
    5. Ef vökvahæðin er of lítil skal fjarlægja áfyllingartappann og fylla á með tilgreindum vökva, þar til vökvinn seytlar út um opið (Mynd 52).

    6. Komið afrennslistappanum fyrir og herðið hann með 20 til 27 N∙m hersluátaki.

    Skipt um vökva í sambyggðum gírkassa og drifi

    Tíðni viðhaldsþjónustuViðhaldsferli
    Á 100 klukkustunda fresti
  • Athugið sambyggða gírkassann og drifið m.t.t. leka.
  • Á 800 klukkustunda fresti
  • Skiptið um vökva í sambyggðum gírkassa og drifi.
  • Gerð vökva: SAE 10W-30 (API þjónustuflokkur SJ eða hærri)

    Rúmtak vökva: 0,66 l

    1. Setjið afrennslispönnu undir hlíf sambyggða gírkassans og drifsins (Mynd 53).

      g217834
    2. Fjarlægið boltana úr sambyggða gírkassanum og drifinu og tappið öllum vökvanum af (Mynd 53).

      Note: Setjið hlíf sambyggða gírkassans og boltann til hliðar.

    3. Komið hlíf sambyggða gírkassans og drifsins fyrir með boltunum sem áður voru fjarlægðir og herðið boltana með 22 til 32 N∙m hersluátaki.

    4. Fyllið á sambyggðan gírkassa og drif með tilgreindum vökva, þar til vökvi seytlar út um opið (Mynd 52).

    5. Komið afrennslistappanum fyrir og herðið hann með 20 til 27 N∙m hersluátaki.

    Viðhald hemla

    Skoðun stöðuhemils

    1. Setjið stöðuhemilinn á með því að toga stöðuhemilsstöngina í átt að stjórnanda þar til vart verður við spennu.

    2. Ef stjórnandi finnur enga spennu þegar stöðuhemill er togaður í átt að stjórnanda innan 11,4 til 16,5 cm frá P“-tákninu á mælaborðinu þarf að stilla stöðuhemilinn. Frekari upplýsingar eru í Stöðuhemillinn stilltur.

    Stöðuhemillinn stilltur

    1. Gangið úr skugga um að stöðuhemillinn sé ekki á.

    2. Notið tjakkstanda til að lyfta afturhluta vinnubílsins. Frekari upplýsingar eru í Vinnuvélinni lyft.

    3. Notið tvo skiptilykla; annan til að halda stillistönginni á klafanum á sínum stað, hinn til að losa festiróna sem nemur fjórðungi úr snúningi (Mynd 54).

      g034434
    4. Haldið stillingastoðinni og festirónni á réttum stað og herðið um leið stillingastoðina með því að snúa henni (Mynd 54).

      Note: Framkvæmið þetta skref þar til vart verður við viðnám í felgunni.

    5. Haldið stillistönginni og festirónni á réttum stað og snúið festirónni um leið sem nemur fjórðungi úr snúningi aftur á bak (Mynd 54).

    6. Haldið stillingastoðinni og festirónni á réttum stað og herðið um leið festiróna (Mynd 54).

    7. Framkvæmið skref 1 til og með 6 á hinni hliðinni.

    8. Sannreynið að stöðuhemill hafi verið stilltur í réttri spennu. Frekari upplýsingar eru í Skoðun stöðuhemils.

      Note: Ef ekki reynist unnt að stilla stöðuhemillinn með áskildri spennu eru bremsuklossarnir hugsanlega slitnir og skipta verður um bremsuklossana. Hægt er að fá frekari aðstoð hjá viðurkenndum dreifingaraðila Toro.

    Athugun á hæð hemlavökvans

    Tíðni viðhaldsþjónustuViðhaldsferli
    Fyrir hverja notkun eða daglega
  • Athugið hæð hemlavökvans.Kannið hæð hemlavökva áður en mótorinn er notaður í fyrsta sinn.
  • Gerð hemlavökva: DOT 3

    1. Leggið vinnubílnum á jafnsléttu, setjið stöðuhemilinn á, drepið á vélinni og takið lykilinn úr.

    2. Lyftið vélarhlífinni til að komast að aðalhemlatjakki og geymi (Mynd 55).

      g034314
    3. Lítið eftir vökvastöðu á hlið geymisins (Mynd 56).

      Note: Hæðin ætti að vera yfir lágmarkslínunni.

      g002136
    4. Ef vökvastaða er lág skal gera eftirfarandi:

      1. Hreinsið svæðið kringum lokið á geyminum og fjarlægið lokið (Mynd 55).

      2. Fyllið á með DOT 3-hemlavökva þar til vökvahæðin er komin yfir lágmarkslínuna (Mynd 56).

        Note: Ekki yfirfylla geyminn af hemlavökva.

      3. Setjið lokið á geyminn (Mynd 55).

    5. Lokið vélarhlífinni.

    Hemlaskoðun

    Tíðni viðhaldsþjónustuViðhaldsferli
    Á 100 klukkustunda fresti
  • Skoðið hemlana.
  • Important: Hemlar eru mikilvægir öryggisíhlutir vinnubílsins. Skoðið hemlana gaumgæfilega samkvæmt áætluðu viðhaldsbili til að tryggja hámarksafköst og öryggi.

    • Skoðið hemlaborðana m.t.t. slits eða skemmda. Ef þykkt borða (hemlaklossi) er undir 1,6 mm skal skipta um hemlaborða.

    • Skoðið bakplötuna og aðra íhluti m.t.t. óeðlilegs slits eða aflögunar. Skiptið um alla íhluti sem hafa aflagast.

    • Athugið hæð hemlavökvans; sjá Athugun á hæð hemlavökvans.

    Skipt um bremsuklossa hemla og stöðuhemils

    Tíðni viðhaldsþjónustuViðhaldsferli
    Á 400 klukkustunda fresti
  • Skiptið um bremsuklossa hemla og stöðuhemils.
  • Hafið samband við viðurkenndan dreifingaraðila Toro varðandi skoðun og hugsanleg skipti á bremsuklossum hemla og stöðuhemils.

    Skipt um hemlavökva

    Tíðni viðhaldsþjónustuViðhaldsferli
    Á 1.000 klukkustunda fresti
  • Skiptið um hemlavökva.
  • Hafið samband við viðurkenndan dreifingaraðila Toro.

    Viðhald undirvagns

    Stilling á klinkum pallsins

    Ef klinkan á pallinum er vanstillt hristist pallurinn upp og niður þegar vinnubílnum er ekið. Hægt er að stilla klinkustoðirnar til að klinkurnar haldi pallinum þétt að undirvagninum.

    1. Gangið úr skugga um að pallurinn læsist.

      Note: Líklega er slagpinninn á klinku pallsins of lágt niðri ef pallurinn læsist ekki. Þegar pallurinn læsist en hristist upp og niður þegar vinnubílnum er ekið er slagpinninn á klinku pallsins líklega of hátt uppi.

    2. Lyftið pallinum, Pallinum lyft í sturtustöðu.

    3. Losið um boltana tvo á slagpinna klinku pallsins og færið slagpinnann upp eða niður, eftir því hvort hann var of hátt uppi eða of lágt niðri (Mynd 57).

      g034451
    4. Herðið boltana tvo á slagpinna klinku pallsins (Mynd 57).

    5. Gangið úr skugga um að stillingin sér rétt með því að festa klinkuna á pallinum nokkrum sinnum.

    Þrif

    Vinnubíllinn þrifinn

    Tíðni viðhaldsþjónustuViðhaldsferli
    Fyrir hverja notkun eða daglega
  • Þrífið sláttuvélina.
  • Notið eingöngu vatn eða mild hreinsiefni til að þrífa vinnubílinn eftir þörfum. Nota má tusku til að þrífa vinnubílinn.

    Important: Ekki nota ísalt vatn eða hreinsað vatn til að þrífa vinnubílinn.

    Important: Ekki er ráðlagt að nota háþrýstivatn til að þvo vinnubílinn. Slíkt getur skemmt rafkerfið, losað um mikilvægar merkingar eða skolað í burtu nauðsynlegri smurfeiti af núningsstöðum. Ekki nota of mikið vatn, sér í lagi nálægt stjórnborðinu, mótornum, stjórnbúnaði mótorsins, hleðslutækinu, afturhluta stjórnborðsins og rafhlöðunum.

    Geymsla

    Öryggi við geymslu

    • Drepið á vélinni, takið lykilinn úr og bíðið þar til allir hlutar hafa stöðvast áður en farið er úr ökumannssætinu. Leyfið vinnubílnum að kólna áður en hann er stilltur, þjónustaður, þrifinn eða settur í geymslu.

    • Geymið ekki vinnubílinn eða eldsneytisílát nærri óvörðum loga, neistaflugi eða kveikiloga, á borð við vatnshitara eða önnur heimilistæki.

    Vinnubíllinn settur í geymslu

    1. Leggið vinnubílnum á jafnsléttu, setjið stöðuhemilinn á, drepið á vélinni og takið lykilinn úr.

    2. Hreinsið óhreinindi og gróm af vinnubílnum, þ.m.t. af ytra byrði vélarhússins.

      Important: Sláttuvélina má þrífa með mildu hreinsiefni og vatni. Ekki nota háþrýstibúnað til að þrífa vinnubílinn. Háþrýstiþvottur getur skemmt rafkerfið eða skolað í burtu nauðsynlegri smurfeiti af núningsstöðum. Ekki nota of mikið vatn, sérstaklega nærri stjórnborðinu, ljósunum, mótorunum og rafhlöðunum.

    3. Skoðið hemlana; sjá Hemlaskoðun.

    4. Kannið þrýsting í hjólbörðum; sjá Þrýstingur hjólbarða kannaður.

    5. Skoðið og herðið alla bolta, rær og skrúfur. Gerið við eða skiptið um skemmda hluta.

    6. Lakkið yfir rispaða eða óvarða málmfleti.

      Note: Lakk er fáanlegt hjá viðurkenndum dreifingaraðila Toro.

    7. Breiðið yfir vinnuvélina til að verja hana og halda henni hreinni.

    Kröfur fyrir geymslu rafhlöðu

    Note: Ekki þarf að fjarlægja rafhlöðurnar úr vinnuvélinni fyrir geymslu.

    Upplýsingar um æskilegt hitastig við geymslu er að finna í eftirfarandi töflu:

    Kröfur um hitastig fyrir geymslu

    GeymsluskilyrðiKröfur um hitastig
    Eðlileg geymsluskilyrði-20 til 45 °C
    Mikill hiti – 1 mánuður eða minna45 til 60 °C
    Mikill kuldi – 3 mánuðir eða minna-30 til -20 °C

    Important: Hiti utan marka skemmir rafhlöðurnar.Hitastigið sem rafhlöðurnar eru geymdar við hefur áhrif á endingartíma þeirra. Geymsla í langan tíma við mjög háan hita styttir endingartíma rafhlöðunnar. Geymið vinnubílinn við eðlileg geymsluskilyrði sem gefin eru upp á töflunni fyrir æskilegt hitastig.

    • Áður en vinnuvélin er sett í geymslu skal hlaða eða afhlaða rafhlöðurnar í 40% til 60% hleðslu (50,7 til 52,1 volt).

      Note: 50% hleðsla er best til að tryggja hámarksendingu rafhlaða. Endingartími rafhlaðanna styttist ef þær eru hlaðnar í 100% hleðslu fyrir geymslu.Ef gert er ráð fyrir að vinnuvélin verði geymd í lengri tíma skal hlaða rafhlöðurnar í um 60% hleðslu.

    • Á sex mánaða fresti skal kanna hleðslustöðu rafhlaðanna og tryggja að hún sé á milli 40% og 60%. Ef hleðslan er undir 40% þarf að hlaða rafhlöðurnar í 40% til 60% hleðslu.

    • Hægt er að nota fjölmæli til að kanna hleðslustöðuna þegar dautt er á vinnubílnum. Eftirfarandi tafla sýnir hvaða spenna samsvarar hvaða hleðslustöðu:

      SpennaHleðslustaða
      52,1 V60%
      51,4 V50%
      50,7 V40%
    • Takið hleðslutækið úr sambandi við rafmagn þegar hleðslu er lokið. Aftengið rafmagnstengilinn meðan á geymslu stendur til að lágmarka afhleðslu rafhlaðanna.

    • Ef hleðslutækið er haft á vinnubílnum slekkur það á sér þegar rafhlöðurnar eru fullhlaðnar og ekki kviknar aftur á því fyrr en búið er að taka það úr sambandi og setja aftur í samband.

    Bilanaleit

    ProblemPossible CauseCorrective Action
    Kóði E-0-0-1 eða E-0-4-7
    1. Há rafhlöðuspenna
    1. Tryggið að rafhlöðuspennan sé rétt og kapaltengingar séu tryggar; tryggið að rafhlaðan sé í góðu ástandi.
    Kóði E-0-0-4
    1. Bilun greind í rafhlöðu eða stjórnkerfi rafhlöðu
    1. Hafið samband við viðurkenndan dreifingaraðila Toro.
    Kóði E-0-0-7
    1. Hámarki amperstunda rafhlöðunnar náð
    1. Mögulegar orsakir eru t.d. lélegt ástand rafhlöðu, mikil afhleðsla rafhlöðu, illa tengd rafhlaða og/eða mikið sníkjuálag á rafhlöðu við hleðslu. Mögulegar lausnir: rafhlöðuskipti; Athugið jafnstraumstengingar. aftenging sníkjuálags. Þessi villa hverfur þegar hleðslutækið er endurstillt með því að taka jafnstraum af því og setja á aftur.
    Kóði E-0-1-2
    1. Skautaskiptavilla
    1. Rafhlaðan er vitlaust tengd við hleðslutækið. Tryggið að tengingar rafhlöðunnar séu tryggar.
    Kóði E-0-2-3
    1. Villa vegna hárrar riðspennu (>270 VAC)
    1. Tengið hleðslutækið við riðstraum sem skilar jöfnum riðstraumi á milli 85–270 VAC / 45–65 Hz.
    Kóði E-0-2-4
    1. Hleðslutæki fer ekki í gang
    1. Ekki kviknar rétt á hleðslutækinu. Aftengið riðstraumsinntakið og tengingu rafhlöðu í 30 sekúndur og reynið svo aftur.
    Kóði E-0-2-5
    1. Villa vegna flöktandi lágrar riðspennu
    1. Riðstraumur er óstöðugur. Hugsanleg ástæða er of lítil rafstöð eða alltof litlar inntakssnúrur. Tengið hleðslutækið við riðstraum sem skilar jöfnum riðstraumi á milli 85–270 VAC / 45–65 Hz.
    Kóði E-0-3-7
    1. Endurforritun mistókst
    1. Hugbúnaðaruppfærsla eða forskriftarkeyrsla mistókst. Gangið úr skugga um að nýi hugbúnaðurinn sé réttur.
    Kóði E-0-2-9, E-0-3-0, E-0-3-2, E-0-4-6 eða E-0-6-0
    1. Samskiptavilla við rafhlöðu
    1. Tryggið að tenging merkjavíranna við rafhlöðuna sé trygg.
    ProblemPossible CauseCorrective Action
    F-0-0-1, F-0-0-2, F-0-0-3, F-0-0-4, F-0-0-5, F-0-0-6 eða F-0-0-7
    1. Innri villa í hleðslutæki
    1. Aftengið riðstraumstenginguna og rafhlöðutenginguna í minnst 30 sekúndur og reynið svo aftur. Ef þetta virkar ekki skal hafa samband við viðurkenndan dreifingaraðila Toro.
    ProblemPossible CauseCorrective Action
    Kóði P156C, P156E
    1. Bilun varð í grunnstillingu stjórnbúnaðar.
    1. Hafið samband við viðurkenndan dreifingaraðila Toro.
    Kóði P0226, P156C, B1107
    1. Stöðuhemill er á, bæði í framgír og bakkgír.
    2. Bilun varð í drifsrofa.
    1. Takið stöðuhemilinn af.
    2. Drepið á vinnubílnum og athugið virkni rofanna.
    Kóði P0A54, P156C
    1. Straumur mótorsins fór yfir viðmiðunarmörk stjórnbúnaðarins.
    2. Bilun varð í íhlut innri aflgjafa.
    1. Svissið Af, bíðið í nokkrar sekúndur og svissið síðan Á. Athugið allar rafhlöður og háspennutengi stjórnbúnaðar. Hafið samband við viðurkenndan dreifingaraðila Toro ef ástandið er viðvarandi.
    2. Hafið samband við viðurkenndan dreifingaraðila Toro.
    Kóði P2BE8, P2BE9
    1. Bilun varð í aðalsnertu.
    1. Athugið hvort snertivírarnir, spólan og snerturnar starfi á réttan hátt.
    Kóði P0A44
    1. Farið var yfir hámarkshraða mótors.
    1. Svissið Af, bíðið í nokkrar sekúndur og svissið síðan Á og athugið hvort að notkun sé eðlileg.
    Kóði P0226, P156C
    1. Stigið er á eldsneytisgjöfina um leið og vinnubíllinn er gangsettur.
    2. Tiltekin snúra er ekki tengd á réttan hátt.
    1. Stígið af fótstiginu, svissið Af, bíðið í nokkrar sekúndir og svissið síðan Á og athugið hvort að notkun sé eðlileg.
    2. Prófið leiðslurnar á milli stjórnbúnaðarins og snertunnar, rofanna og gaumljóssins.
    Kóði P0E8E, P156C
    1. Lítil hleðsla er eftir á rafhlöðunum.
    2. Rafhlöðurnar eru alveg tómar.
    3. Forhleðsla innri þéttisins er minni en nemur 5V.
    1. Hættið notkun vinnubílsins, akið hægt að næstu hleðslustöð og hlaðið rafhlöðurnar að fullu.
    2. Dragið vinnubílinn að hleðslustöðinni og hlaðið rafhlöðurnar að fullu.
    3. Hlaðið rafhlöðurnar og svissið Af, bíðið í nokkrar sekúndur, svissið Á og athugið hvort að notkun sé eðlileg.
    Kóði P0A2F, P0A3C, P1502, P1511, P1512
    1. Stjórnbúnaðurinn eða mótorinn hafa ofhitnað eða ofkælst.
    1. Athugið hvort að mótorinn eða stjórnbúnaðurinn sé mjög heitur eða mjög kaldur og látið síðan vinnubílinn kólna í öruggt hitastig áður en hefðbundin notkun hefst á nýjan leik.
    Kóði P0A44, P1520
    1. Bilun varð í afkóðara mótors.
    2. Farið var yfir hámarkshraða mótors.
    1. Athugið leiðslur afkóðara mótorsins (hraðaskynjarans).
    2. Svissið Af, bíðið í nokkrar sekúndur og svissið síðan Á og athugið hvort að notkun sé eðlileg.
    Kóði P156D
    1. Innri hugbúnaðarvilla varð.
    1. Hafið samband við viðurkenndan dreifingaraðila Toro.