| Tíðni viðhaldsþjónustu | Viðhaldsferli |
|---|---|
| Fyrir hverja notkun eða daglega |
|
Þessi sláttuvél er ætluð til einkanota. Hún er hönnuð fyrir grasslátt á vel viðhöldnum lóðum í einkaeigu. Notkun þessarar vöru við annað en tilætlaða notkun getur skapað hættu fyrir stjórnanda og nærstadda.
Lesið þessar upplýsingar vandlega til að læra að stjórna og sinna réttu viðhaldi á vörunni og til að koma í veg fyrir meiðsl á fólki og skemmdir á vörunni. Eigandi ber ábyrgð á réttri og öruggri notkun vörunnar.
Á www.Toro.com er að finna frekari upplýsingar, þar á meðal öryggisupplýsingar, kennsluefni, upplýsingar um aukabúnað, upplýsingar um söluaðila og vöruskráningu.
Þegar þörf er á þjónustu, varahlutum frá Toro eða frekari upplýsingum skal hafa samband við viðurkenndan þjónustu- og söluaðila eða þjónustuver Toro og hafa tegundar- og raðnúmer vörunnar við höndina. Mynd 1 sýnir hvar tegundar- og raðnúmerin eru á vörunni. Skrifið númerin í kassann hér á síðunni.
Important: Hægt er að nálgast upplýsingar um ábyrgð, varahluti og aðrar vöruupplýsingar með því að skanna QR-kóðann á raðnúmersmerkingunni (ef hann er til staðar) með fartæki

Í þessari handbók er bent á mögulega hættu og í henni eru öryggismerkingar auðkenndar með öryggistáknum (Mynd 2), sem sýna hættu sem kann að valda alvarlegum meiðslum eða dauða ef ráðlögðum varúðarráðstöfunum er ekki fylgt.
Öryggistáknið (Mynd 2) sem kemur fyrir í þessari handbók og á vinnuvélinni vísar til mikilvægra öryggisupplýsinga sem taka þarf mið af til að koma í veg fyrir slys.

Öryggistáknið er sýnt fyrir ofan upplýsingar sem vekja athygli á óöruggum aðgerðum eða aðstæðum og á eftir því kemur orðið HÆTTA, VIÐVÖRUN eða VARÚÐ.
HÆTTA gefur til kynna yfirvofandi hættulegar aðstæður sem valda dauða eða alvarlegum meiðslum ef ekki er komið í veg fyrir þær.
VIÐVÖRUN gefur til kynna hugsanlega hættu sem gæti valdið dauða eða alvarlegum meiðslum ef ekki er komið í veg fyrir hana.
VARÚÐ gefur til kynna hugsanlega hættu sem getur valdið minni háttar eða alvarlegri meiðslum ef ekki er komið í veg fyrir hana.
Í þessari handbók eru notuð tvö önnur orð til að vekja athygli á upplýsingum. Mikilvægt“ vekur athygli á sérstökum vélrænum upplýsingum og Athugið“ undirstrikar almennar upplýsingar sem vert er að lesa vandlega.
Þessi vara uppfyllir allar viðeigandi evrópskar reglugerðir; frekari upplýsingar er að finna á aðskildu samræmisyfirlýsingarskjali vörunnar.
Heildar- eða rauntog: Heildar- eða rauntog þessarar vélar var metið af framleiðanda vélarinnar á rannsóknarstofu í samræmi við SAE J1940 eða J2723. Raunverulegt tog vélarinnar í þessum flokki sláttuvéla er mun lægra þegar búið er að stilla hana í samræmi við öryggis-, útblásturs- og vinnslukröfur. Frekari upplýsingar eru í upplýsingum frá framleiðanda vélarinnar sem fylgja með sláttuvélinni.
Ekki eiga við öryggisbúnað sláttuvélarinnar eða gera hann óvirkan og kannið reglulega hvort hann virki rétt. Ekki reyna að stilla eða á annan hátt eiga við snúningshraðastýringu vélarinnar; slíkt kann að leiða til óöruggra vinnuskilyrða sem leitt geta til meiðsla á fólki.
Þessi vara getur valdið hættu á aflimun og skotið hlutum frá sér. Fylgið alltaf öllum öryggisleiðbeiningum til að koma í veg fyrir alvarleg meiðsl á fólki eða dauða.
Lesið vandlega og fylgið leiðbeiningum og viðvörunum í þessari notendahandbók og á sláttuvélinni og tengitækjum áður en vélin er gangsett.
Ekki setja hendur eða fætur nærri hlutum á hreyfingu eða undir sláttuvélina. Haldið öruggri fjarlægð frá öllum losunaropum.
Ekki nota sláttuvélina án hlífa og annars öryggisbúnaðar á sínum stað á sláttuvélinni og í nothæfu ástandi.
Haldið nærstöddum og börnum utan vinnusvæðisins. Ekki leyfa börnum að stjórna sláttuvélinni. Leyfið eingöngu fólki með þroska, þjálfun, þekkingu og líkamlega burði að stjórna sláttuvélinni.
Stöðvið sláttuvélina, drepið á vélinni og bíðið þar til allir hlutir á hreyfingu hafa stöðvast áður en unnið er við sláttuvélina, fyllt er á eldsneyti eða stífla í sláttuvélinni er losuð.
Röng notkun eða viðhald þessarar sláttuvélar
getur leitt til meiðsla. Til að draga úr slysahættu
skal fara eftir þessum öryggisleiðbeiningum og vera
ávallt vakandi fyrir öryggistákninu
, sem merkir Aðgát“, Viðvörun“
eða Hætta“ – öryggisleiðbeiningar.
Ef ekki er farið eftir þessum leiðbeiningum er hætta
á meiðslum á fólki eða dauða.
![]() |
Öryggismerkingar og leiðbeiningar sjást greinilega og eru hjá öllum svæðum þar sem möguleg hætta er til staðar. Skiptið um skemmdar eða týndar merkingar. |




Important: Fjarlægið og fargið hlífðarplastinu af sláttuvélinni og takið annað plast eða umbúðir af henni.
Hlutar sem þarf fyrir þetta verk:
| Neðra handfang | 2 |
| Stuttur bolti | 4 |
| Flöt skinna | 4 |
| Splittskinna | 4 |
| Ró | 4 |
| Efra handfang | 1 |
| Hnúður á handfangi | 2 |
| Sveigð skinna | 2 |
| Langur bolti | 2 |
Festið neðra handfangið við sláttuvélarhúsið með 4 boltum, 4 flötum skífum, 4 splittskinnum og 4 róm (Mynd 3).

Festið efra handfangið við neðra handfangið með því að nota 2 handfangshnúða, 2 sveigðar skinnur og 2 bolta. Herðið handfangshnúðana vel með höndunum (Mynd 4).

Setjið snúrurnar í snúruklemmuna og festið hana við handfangið eins og sýnt er á Mynd 5.

Important: Sláttuvélin er afhent án olíu á vél. Fyllið á vélina með olíu áður en vélin er gangsett.
Rúmtak fyrir smurolíu: 0,55 l
Seigjustig olíu: SAE 30 eða SAE 10W-30 hreinsiolía
API-þjónustuflokkun: SJ eða hærra
Færið sláttuvélina á jafnsléttu.
Takið olíukvarðann úr með því að snúa lokinu rangsælis og toga það út (Mynd 7).

Hellið um 3/4 af olíurúmtaki vélarinnar í áfyllingarleiðsluna fyrir olíu.
Bíðið í um þrjár mínútur á meðan olían lekur niður í vélina.
Þurrkið olíukvarðann með hreinum klút.
Setjið olíukvarðann í áfyllingarleiðsluna og takið hann aftur úr.
Lesið olíuhæðina af olíukvarðanum (Mynd 7).
Ef olíukvarðinn sýnir of lága olíuhæð skal hella litlu magni af olíu í áfyllingarleiðsluna, bíða í þrjár mínútur og endurtaka skref 5 til 7 þar til olíukvarðinn sýnir rétta olíuhæð.
Of olíukvarðinn sýnir of háa olíuhæð skal tappa umframolíu af þar til olíukvarðinn sýnir rétta olíuhæð; sjá Skipt um smurolíu.
Important: Hætta er á skemmdum á vélinni ef hún er gangsett þegar staða smurolíu í vélinni er of lág eða of há.
Festið olíukvarðann tryggilega.

| Gerð | Þyngd | Lengd | Breidd | Breidd sláttar | Hæð |
| 20949 | 33 kg | 140 cm | 53 cm | 46 cm | 105 cm |
Úrval tengitækja og aukabúnaðar sem Toro samþykkir er í boði fyrir sláttuvélina til að auka við afkastagetu hennar. Hafið samband við viðurkenndan þjónustu- og söluaðila eða dreifingaraðila Toro eða farið á www.Toro.com þar sem finna má lista yfir öll samþykkt tengitæki og aukabúnað.
Notið eingöngu varahluti og aukabúnað frá Toro til að tryggja hámarksafköst og áframhaldandi öryggisvottun sláttuvélarinnar. Varahlutir og aukabúnaður frá öðrum framleiðendum geta reynst hættulegir og notkun þeirra kann að fella ábyrgðina úr gildi.
Note: Miðið vinstri og hægri hlið sláttuvélarinnar út frá hefðbundinni vinnustöðu.
Drepið alltaf á sláttuvélinni, bíðið eftir að allir hreyfanlegir hlutar hafi stöðvast og leyfið sláttuvélinni að kólna áður en hún er stillt, unnið er við hana, hún hreinsuð eða sett í geymslu.
Lærið á örugga notkun búnaðarins, stjórntækin og öryggismerkingarnar.
Gangið úr skugga um að allar hlífar og öryggisbúnaður, á borð við hlífar og/eða grassafnara, séu á sínum stað og virki rétt.
Skoðið sláttuvélina reglulega til að kanna hvort hnífar og hnífaboltar séu slitnir eða skemmdir.
Skoðið svæðið þar sem nota á sláttuvélina og fjarlægið hluti sem geta valdið truflunum á vinnslu hennar eða sem hún gæti skotið frá sér.
Snerting við hníf á hreyfingu veldur alvarlegum meiðslum. Ekki setja fingur undir húsið.
Eldsneyti er mjög eldfimt og mjög sprengifimt. Eldur eða sprenging af völdum eldsneytis getur valdið brunasárum og eignatjóni.
Til að koma í veg fyrir að stöðurafmagn valdi íkveikju í eldsneytinu skal setja ílátið og/eða sláttuvélina beint á jörðina áður en fyllt er á, ekki á ökutæki eða annan hlut.
Fyllið á eldsneytisgeyminn utandyra, á opnu svæði, með kalda vél. Þurrkið upp eldsneytisleka.
Ekki meðhöndla eldsneyti á meðan reykt er eða nálægt óvörðum loga eða neistaflugi.
Ekki fjarlægja eldsneytislokið eða fylla á geyminn með vélina í gangi eða á meðan hún er heit.
Ekki reyna að gangsetja vélina ef eldsneyti hefur hellst niður. Forðist að mynda aðstæður til íkveikju fyrr en eldsneytisgufur hafa gufað upp.
Geymið eldsneyti í samþykktu íláti og geymið þar sem börn ná ekki til.
Eldsneyti er skaðlegt eða lífshættulegt við inntöku. Langtímaváhrif frá gufum geta valdið alvarlegum meiðslum og veikindum.
Forðist innöndun gufa í langan tíma.
Haldið höndum og andliti í öruggri fjarlægð frá stútnum og opi eldsneytisgeymisins.
Haldið eldsneyti í öruggri fjarlægð frá augum og húð.
Best er að nota eingöngu hreint, nýtt og blýlaust bensín með oktantölu upp á 87 eða hærri (flokkunaraðferð (R+M)/2).
ETANÓL: Hægt er að nota bensín með allt að 10% etanóli (blýlaust bensín+etanól) eða 15% MTBE (metýltertbútýleter). Etanól og MTBE eru ekki það sama. Ekki má nota bensín með 15% etanóli (E15). Aldrei nota bensín sem inniheldur meira en 10% etanól, svo sem E15 (15% etanólinnihald), E20 (20% etanólinnihald) eða E85 (allt að 85% etanólinnihald). Notkun bensíns sem ekki hefur verið samþykkt getur valdið neikvæðum áhrifum á afköst og/eða skemmdum á vélinni. Notkun ósamþykkts bensíns fellur ekki undir vöruábyrgð.
Ekki nota bensín sem inniheldur metanól.
Ekki geyma bensín í eldsneytisgeyminum eða eldsneytisílátum yfir vetrartímann nema notað sé varðveisluefni fyrir eldsneyti.
Ekki blanda olíu saman við bensín.
Important: Bæta skal varðveisluefni í eldsneytið út allt sláttutímabilið og blanda því við eldsneyti sem er ekki eldra en 30 daga gamalt til að koma í veg fyrir vandamál með gangsetningu.

| Tíðni viðhaldsþjónustu | Viðhaldsferli |
|---|---|
| Fyrir hverja notkun eða daglega |
|
Færið sláttuvélina á jafnsléttu.
Takið olíukvarðann úr með því að snúa lokinu rangsælis og toga það út (Mynd 11).

Þurrkið olíukvarðann með hreinum klút.
Setjið olíukvarðann í áfyllingarleiðsluna og takið hann aftur úr.
Lesið olíuhæðina af olíukvarðanum (Mynd 11).
Ef olíukvarðinn sýnir of lága olíuhæð skal hella litlu magni af olíu hægt í áfyllingarleiðsluna, bíða í þrjár mínútur og endurtaka svo skref 3 til 5 þar til olíukvarðinn sýnir rétta olíuhæð.
Of olíukvarðinn sýnir of háa olíuhæð skal tappa umframolíu af þar til olíukvarðinn sýnir rétta olíuhæð. Sjá Skipt um smurolíu um hvernig á að tappa af umframolíu.
Important: Hætta er á skemmdum á vélinni ef hún er gangsett þegar olíuhæð í sveifarhúsinu er of lág eða of há.
Stingið olíukvarðanum tryggilega inn í olíuáfyllingarslönguna.
Við stillingu skurðarhæðar getur aðilinn sem stillir komist í snertingu við hnífinn sem er á hreyfingu og orðið fyrir alvarlegum meiðslum.
Drepið á vélinni og bíðið þar til allir hlutar á hreyfingu hafa stöðvast.
Ekki setja fingur undir húsið við stillingu sláttuhæðarinnar.
7 stillingar eru fyrir sláttuhæð, frá 25 til 70 mm. Stillið sláttuhæðina eins og hentar hverju sinni. Stillið framhjólin í sömu hæð og afturhjólin.
Til að stilla sláttuhæð skal aftengja stöngina (Mynd 12), hækka eða lækka vélina og tengja síðan stöngina.

Sláttuhæðarstöður eru sýndar á Mynd 13.

Klæðist viðeigandi klæðnaði, þar á meðal síðbuxum og sterkum skófatnaði með skriðvörn, og notið hlífðargleraugu og heyrnarhlífar. Takið sítt hár í tagl og ekki klæðast víðum fatnaði eða hangandi skartgripum.
Sýnið árvekni á meðan unnið er á sláttuvélinni. Ekki gera neitt sem veldur truflun; slíkt kann að leiða til meiðsla eða eignatjóns.
Notið ekki sláttuvélina veik, þreytt eða undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna.
Hnífurinn er beittur; snerting við hnífinn getur leitt til alvarlegra meiðsla á fólki. Drepið á vélinni og bíðið eftir að allir hlutir hennar hafi stöðvast áður en farið er úr vinnustöðu.
Þegar losað er um stjórnstöng blaðsins ætti vélin að drepa á sér og blaðið ætti að stöðvast innan 3 sekúndna. Ef slíkt gerist ekki, skal umsvifalaust hætta notkun sláttuvélarinnar og hafa samband við viðurkenndan þjónustuaðila.
Haldið óviðkomandi utan vinnusvæðis. Haldið smábörnum utan vinnusvæðis og í umsjá fullorðins einstaklings sem ekki er að vinna á sláttuvélinni. Stöðvið sláttuvélina ef einhver kemur inn á svæðið.
Lítið alltaf niður og aftur fyrir ykkur áður en sláttuvélinni er bakkað.
Vinnið eingöngu á sláttuvélinni með góða yfirsýn og við viðeigandi veðurskilyrði. Ekki nota sláttuvélina þegar hætta er á eldingum.
Blautt gras eða lauf geta leitt til alvarlegra meiðsla þegar einstaklingur rennur og kemst í snertingu við hnífinn. Forðist að slá í bleytu.
Sýnið sérstaka aðgát þegar komið er að blindhornum, runnum, trjám eða öðrum hlutum sem kunna að takmarka útsýnið.
Ekki beina efni sem er losað að öðru fólki. Forðist að losa efni við vegg eða aðra hindrun þar sem efnið getur endurkastast á stjórnandann. Stöðvið hnífinn þegar farið er yfir möl.
Verið vakandi fyrir holum, skorningum, ójöfnum, grjóti eða öðrum huldum hlutum. Ójafnt undirlag getur leitt til þess að stjórnandi missi jafnvægið eða fótfestu.
Ef sláttuvélin rekst í hlut eða byrjar að titra skal tafarlaust drepa á vélinni, bíða þar til allir hlutar á hreyfingu hafa stöðvast og aftengja vírinn frá kertinu áður en leitað er eftir skemmdum á sláttuvélinni. Sinnið öllum nauðsynlegum viðgerðum áður en vinnu er haldið áfram.
Áður en farið er úr vinnustöðu skal drepa á vélinni og bíða eftir að allir hlutir hennar hafi stöðvast.
Ef vélin var í gangi er hún heit og getur valdið alvarlegum brunasárum. Haldið öruggri fjarlægð frá heitri vél.
Látið vélina aðeins ganga á vel loftræstum svæðum. Útblástur inniheldur kolsýring, sem er lyktarlaus, banvæn lofttegund.
Leitið reglulega eftir sliti á íhlutum grassafnarans og losunarrennunnar og skiptið þeim út með varahlutum frá Toro þegar þess gerist þörf.
Sláið þvert á halla; aldrei upp og niður. Gætið fyllstu varúðar við stefnubreytingar í halla.
Ekki slá í mjög miklum halla. Léleg fótfesta getur valdið slysi vegna falls.
Sýnið aðgát þegar slegið er nálægt háum bökkum, skurðum eða vegköntum.
Important: Gúmmíhetta er yfir enda kertisins. Gangið úr skugga um að málmlykkjan á enda kertavírsins (inni í gúmmíhettunni) sé tryggilega fest á málmoddinn á kertinu.
Akstursdrifið er notað með því að ýta akstursdrifsstönginni (Mynd 15) í átt að handfanginu og halda henni.

Note: Fastur hámarkshraði vélarinnar er um 3,7 km/klst.
Akstursdrifið er aftengt með því að sleppa akstursdrifsstönginni.
Sleppið hnífastjórnstönginni til að drepa á vélinni.
Note: Aftengið og jarðtengið kertavírinn áður en vélin er yfirgefin til að koma í veg fyrir að einhver ræsi hana óvart.
Hnífurinn er beittur. Snerting við hnífinn getur leitt til alvarlegra meiðsla á fólki.
Gangið úr skugga um að tætingartengið sé á sínum stað áður en afskurður er tættur.
Aldrei setja hnífinn af stað án þess að tætingartengið sé á sínum stað, graspokinn settur upp eða afturhlífin sé niðri.
Ef graspokinn er á sláttuvélinni skal taka hann af; sjá Graspokinn tekinn af.
Notið graspokann til að safna saman slegnu grasi og laufi af grasflötinni.
Slitinn graspoki getur leitt til þess að litlir steinar og aðrar agnir kastist í átt að notanda eða nærstöddum, sem gæti leitt til alvarlegra meiðsla eða dauða.
Athugið graspokann oft. Ef hann er skemmdur skal setja upp nýjan Toro-poka.
Hnífurinn er beittur. Snerting við hnífinn getur leitt til alvarlegra meiðsla á fólki.
Gangið úr skugga um að graspokinn sé á réttum stað áður en slegið gras og annar afskurður er settur í hann.
Aldrei setja hnífinn af stað án þess að tætingartengið sé á sínum stað, graspokinn settur upp eða afturhlífin sé niðri.
Vélin getur kastað grasi og öðrum hlutum gegnum opið losunarhólf. Hlutir sem kastast af nægum krafti geta valdið alvarlegum meiðslum eða dauða notanda eða nærstaddra.
Opnið aldrei hlíf losunarhólfsins þegar vélin er í gangi.
Ef tætingarfleygur er settur upp á sláttuvélinni skal lyfta afturhlífinni, fjarlægja tætingarfleyginn og loka svo afturhlífinni.
Ef þörf krefur skal setja graspokann saman; sjá Graspokinn settur saman.
Lyftið og haldið uppi afturhlífinni (Mynd 17).

Setjið graspokann á og gangið úr skugga um að pinnarnir á pokanum hvíli í skorunum á handfanginu (Mynd 17).
Færið afturhlífina niður.
Lyftið og haldið uppi afturhlífinni (Mynd 17).
Fjarlægið pokann.
Færið afturhlífina niður.
Ef graspokinn er á sláttuvélinni skal taka hann af áður en slegið gras er losað að aftan; sjá Graspokinn tekinn af.
Ef tætingarfleygur er settur upp á sláttuvélinni skal lyfta afturhlífinni, fjarlægja tætingarfleyginn og loka svo afturhlífinni.
Hnífurinn er beittur. Snerting við hnífinn getur leitt til alvarlegra meiðsla á fólki.
Gangið úr skugga um að afturhlífin sé niðri áður en slegið gras er losað að aftan.
Aldrei setja hnífinn af stað án þess að tætingartengið sé á sínum stað, graspokinn settur upp eða afturhlífin sé niðri.
Sláið eingöngu einn þriðja af hæð grass í hvert skipti. Ekki slá gras niður fyrir 50 mm nema það sé gisið eða komið sé fram á haust og grasvöxtur orðinn hægur.
Þegar gras yfir 15 cm hæð er slegið skal byrja á að slá í efstu sláttuhæðarstillingu og fara hægt yfir og slá því næst í lægri stillingu til að tryggja að grasflöturinn líti vel út. Ef grasið er of hátt gæti sláttuvélin stíflast og vélin stöðvast.
Blautt gras eða lauf eiga það til að klessast saman og valda stíflum í sláttuvélinni eða stöðva vélina. Forðist að slá í bleytu.
Varist mögulega eldhættu í miklu þurrviðri. Fylgið öllum staðbundnum viðvörunum um eldhættu og losið allt þurrt gras og lauf úr sláttuvélinni.
Breytið um sláttustefnu. Þetta dreifir afskurðinum betur yfir grassvörðinn.
Ef útlit grassvarðarins er óviðunandi skal reyna eitt eða fleira af eftirfarandi:
Skiptið um hnífa eða látið brýna þá.
Farið hægar yfir við slátt.
Hækkið sláttuhæðina.
Sláið grasið oftar.
Tryggið að yfirferðir skarist við slátt.
Að slætti loknum skal ganga úr skugga um að um helmingur grassvarðarins sjáist í gegnum slegið laufþykknið. Hugsanlega þarf að fara oftar en einu sinni yfir lauf.
Ef laufin ná meira en 15 cm hæð á flötinni skal slá í hærri sláttuhæð og slá svo aftur yfir svæðið í lægri stillingu.
Farið hægar yfir ef sláttuvélin nær ekki að tæta laufin nógu fínt.
Drepið alltaf á sláttuvélinni, bíðið eftir að allir hreyfanlegir hlutar hafi stöðvast og leyfið sláttuvélinni að kólna áður en hún er stillt, unnið er við hana, hún hreinsuð eða sett í geymslu.
Hreinsið gras og óhreinindi af sláttuvélinni til að koma í veg fyrir eldhættu. Hreinsið upp olíu- eða eldsneytisleka.
Aldrei geyma vinnuvélina eða eldsneytisílát nærri óvörðum loga, neistaflugi eða kveikiloga, á borð við vatnshitara eða öðrum heimilistækjum.
Sýnið aðgát þegar sláttuvélin er fermd eða affermd.
Festið sláttuvélina til að hún renni ekki til.
| Tíðni viðhaldsþjónustu | Viðhaldsferli |
|---|---|
| Fyrir hverja notkun eða daglega |
|
Sláttuvélin kann að losa um óhreinindi undan vélinni.
Notið hlífðargleraugu.
Verið í vinnustöðu (fyrir aftan handfangið) þegar vélin er í gangi.
Ekki leyfa öðrum að vera nálægt.
Best er að þrífa sláttuvélina stuttu eftir slátt.
Færið sláttuvélina yfir á slétt, steypt undirlag.
Drepið á vélinni og bíðið eftir að allir hlutar hafi stöðvast áður en vinnustaðan er yfirgefin.
Stillið sláttuvélina á lægstu sláttuhæð; sjá Sláttuhæð stillt.
Þrífið svæðið undir afturhlífinni þar sem afskurðurinn fer úr vélarhúsinu í graspokann.
Note: Þrífið svæðið þar sem hægt er að velja um losun með losunarstöngina bæði í fremstu og öftustu stillingu.
Festið garðslöngu sem tengd er við krana við hraðhreinsunartengið (Mynd 18).

Skrúfið frá vatninu.
Gangsetjið vélina og látið hana ganga þar til slegið gras hættir að koma undan sláttuvélinni.
Drepið á vélinni.
Skrúfið fyrir vatnið og aftengið garðslönguna frá sláttuvélinni.
Gangsetjið vélina og látið ganga í nokkrar mínútur til að þurrka undir sláttuvélinni og koma í veg fyrir tæringu.
Leyfið vélinni að kólna áður en hún er sett í geymslu í lokuðu rými.
Ef handfangið er lagt niður eða reist upp á rangan máta er hætta á að snúrurnar skemmist, sem aftur leiðir til óöruggra notkunarskilyrða.
Varist að skemma snúrur þegar handfangið er lagt niður eða reist upp.
Ef snúra skemmist skal hafa samband við viðurkenndan sölu- og þjónustuaðila Toro.
Note: Miðið vinstri og hægri hlið sláttuvélarinnar út frá hefðbundinni vinnustöðu.
| Tíðni viðhaldsþjónustu | Viðhaldsferli |
|---|---|
| Fyrir hverja notkun eða daglega |
|
| Á 100 klukkustunda fresti |
|
| Árlega |
|
| Árlega eða fyrir geymslu |
|
Drepið alltaf á sláttuvélinni, bíðið eftir að allir hreyfanlegir hlutar hafi stöðvast og leyfið sláttuvélinni að kólna áður en hún er stillt, unnið er við hana, hún hreinsuð eða sett í geymslu.
Aftengið kertavírinn frá kertinu áður en viðhaldi er sinnt.
Klæðist hönskum og hlífðargleraugum þegar unnið er við sláttuvélina.
Hnífurinn er beittur; snerting við hnífinn getur leitt til alvarlegra meiðsla á fólki. Klæðist hönskum þegar unnið er við hnífinn. Ekki gera við eða breyta hnífnum/hnífunum.
Aldrei eiga við öryggisbúnað. Kannið hvort hann virki rétt með reglulegu millibili.
Eldsneytisleki getur átt sér stað þegar sláttuvélinni er hallað. Eldsneyti er eldfimt og sprengifimt og getur valdið meiðslum á fólki. Látið vélina ganga þar eldsneyti klárast eða tappið eldsneyti af með handdælu; aldrei sjúga eldsneytið úr geyminum.
Notið eingöngu varahluti og aukabúnað frá Toro til að tryggja hámarksafköst sláttuvélarinnar. Varahlutir og aukabúnaður frá öðrum framleiðendum geta reynst hættulegir og notkun þeirra kann að fella ábyrgðina úr gildi.
Drepið á vélinni og bíðið þar til hlutir á hreyfingu hafa stöðvast.
Takið kertavírinn úr kertinu (Mynd 20).

Tengið kertavírinn við kertið þegar viðhaldsvinnu er lokið.
Important: Tæmið eldsneytisgeyminn með því að nota sláttuvélina á hefðbundinn hátt áður en hún er sett á hliðina til að skipta um olíu eða hnífinn. Notið handknúna eldsneytisdælu til að fjarlægja eldsneytið ef þörf er á að setja sláttuvélina á hliðina áður en hún verður eldsneytislaus. Ávallt skal leggja sláttuvélina á hliðina og láta olíukvarðann snúa niður.
Eldsneytisleki getur átt sér stað þegar sláttuvélinni er hallað. Eldsneyti er eldfimt og sprengifimt og getur valdið meiðslum á fólki.
Látið vélina ganga þar eldsneyti klárast eða tappið eldsneyti af með handdælu, aldrei sjúga eldsneytið úr geyminum.
| Tíðni viðhaldsþjónustu | Viðhaldsferli |
|---|---|
| Á 100 klukkustunda fresti |
|
Notið Champion RN9YC kerti eða samsvarandi.
Drepið á vélinni og bíðið þar til allir hlutar á hreyfingu hafa stöðvast.
Aftengið vírinn frá kertinu.
Hreinsið svæðið í kringum kertið.
Takið kertið úr vélinni.
Important: Skiptið um sprungin, menguð eða skítug kerti. Ekki þrífa rafskautin, vegna þess að óhreinindi sem berast inn í vélina geta skemmt hana.
Stillið bilið á nýja kertinu á 0,76 mm eins og sýnt er á Mynd 21.

Setjið kertið í.
Herðið kertið að 20 N∙m.
Tengið vírinn við kertið.
| Tíðni viðhaldsþjónustu | Viðhaldsferli |
|---|---|
| Árlega |
|
Ýtið klinkuflipunum ofan á loftsíuhlífinni niður (Mynd 22).

Opnið hlífina.
Fjarlægið pappírsloftsíuna og svampforsíuna (Mynd 23).

Skoðið svampforsíuna og skiptið um hana ef hún er skemmd eða mjög óhrein.
Skoðið loftsíuna.
Skiptið um pappírsloftsíuna ef hún er skemmd eða gegnumdreypt í olíu eða eldsneyti.
Ef pappírsloftsían er óhrein skal slá henni í hart yfirborð nokkrum sinnum eða blása þrýstilofti með minni þrýstingi en 207 kPa (30 psi) gegnum þá hlið síunnar sem snýr að vélinni.
Note: Ekki bursta óhreinindin af síunni, burstun þrýstir óhreinindum inn í trefjarnar.
Notið rakan klút til að þrífa óhreinindi af loftsíuhúsinu og -hlífinni. Gætið þess að óhreinindi berist ekki í loftrásina þegar þurrkað er.
Setjið svampforsíuna og pappírsloftsíuna í loftsíuna.
Setjið lokið á.
Ekki er þörf á því að skipta um smurolíu en ef það er gert skal nota eftirfarandi aðferð.
Rúmtak fyrir smurolíu: 0,55 l
Seigjustig olíu: SAE 30 eða SAE 10W-30 hreinsiolía
API-þjónustuflokkun: SJ eða hærra
Note: Látið vélina ganga í nokkrar mínútur til að hita olíuna upp áður en skipt er um hana. Heit olía rennur betur og ber meiri óhreinindi með sér.
Færið sláttuvélina á jafnsléttu.
Frekari upplýsingar eru í Undirbúningur fyrir viðhaldsvinnu.
Takið olíukvarðann úr með því að snúa lokinu rangsælis og toga það út (Mynd 24).

Hallið sláttuvélinni á hliðina (þannig að loftsían vísi upp) til að tappa notaðri olíu af í gegnum áfyllingarleiðslu fyrir olíu (Mynd 25).

Þegar búið er að tappa notuðu olíunni af er sláttuvélin reist við.
Hellið um 3/4 af olíurúmtaki vélarinnar í áfyllingarleiðslu fyrir olíu.
Bíðið í um þrjár mínútur á meðan olían lekur niður í vélina.
Þurrkið olíukvarðann með hreinum klút.
Setjið olíukvarðann í áfyllingarleiðsluna og takið hann aftur úr.
Lesið olíuhæðina af olíukvarðanum (Mynd 25).
Ef olíukvarðinn sýnir of lága olíuhæð skal hella litlu magni af olíu í áfyllingarleiðsluna, bíða í þrjár mínútur og endurtaka skref 8 til 10 þar til olíukvarðinn sýnir rétta olíuhæð.
Of olíukvarðinn sýnir of háa olíuhæð skal tappa umframolíu af þar til olíukvarðinn sýnir rétta olíuhæð.
Important: Hætta er á skemmdum á vélinni ef hún er gangsett þegar staða smurolíu í vélinni er of lág eða of há.
Festið olíukvarðann tryggilega.
Endurvinnið notaða olíu á viðeigandi máta.
| Tíðni viðhaldsþjónustu | Viðhaldsferli |
|---|---|
| Árlega |
|
Important: Nota þarf átaksmæli til að setja hnífinn rétt á. Ef átaksmælir er ekki til staðar eða þú treystir þér ekki til þessa verks skal hafa samband við viðurkenndan sölu- og þjónustuaðila.
Skoðið hnífinn í hvert sinn sem sláttuvélin verður eldsneytislaus. Skiptið tafarlaust um hnífinn ef hann skemmist eða brotnar. Ef hnífseggin verður bitlaus eða skörðótt skal láta brýna hnífinn eða skipta honum út.
Hnífurinn er beittur. Snerting við hnífinn getur leitt til alvarlegra meiðsla á fólki.
Klæðist hönskum þegar unnið er við hnífinn.
Frekari upplýsingar eru í Undirbúningur fyrir viðhaldsvinnu.
Leggið sláttuvélina á hliðina og látið olíukvarðann snúa upp.
Notið spýtu til að halda hnífnum stöðugum (Mynd 26).

Fjarlægið hnífinn og haldið öllum festingum til haga (Mynd 26).
Setjið nýja hnífinn og allar festingar á sláttuvélina (Mynd 27).

Important: Látið sveigða enda hnífsins snúa að sláttuvélarhúsinu.
Notið átaksmæli til að herða bolta hnífsins að 45 N∙m (33 ft-lb).
| Tíðni viðhaldsþjónustu | Viðhaldsferli |
|---|---|
| Árlega eða fyrir geymslu |
|
Berið nokkra dropa af litíumfitu nr. 2 á kúlulegurnar á hverju hjóli (Mynd 28).

Geymið sláttuvélina á svölum, hreinum og þurrum stað.
Drepið alltaf á sláttuvélinni, bíðið eftir að allir hreyfanlegir hlutar hafi stöðvast og leyfið sláttuvélinni að kólna áður en hún er stillt, unnið er við hana, hún hreinsuð eða sett í geymslu.
Við síðustu áfyllingu eldsneytis á árinu skal bæta við varðveisluefni fyrir eldsneyti (t.d. Toro Premium Fuel Treatment).
Farga skal öllu ónotuðu eldsneyti á viðeigandi hátt. Endurvinnið það samkvæmt gildandi reglum eða notið í bifreiðar.
Note: Gamalt eldsneyti í eldsneytisgeyminum er helsta ástæðan fyrir erfiðleikum með gangsetningu. Ekki geyma eldsneyti án verðveisluefnis lengur en í 30 daga og ekki geyma eldsneyti með varðveisluefni lengur en í 90 daga.
Látið sláttuvélina ganga þar til eldsneytið klárast og vélin drepur á sér.
Gangsetjið vélina á ný.
Látið vélina ganga til hún drepur á sér. Þegar ekki er lengur hægt að gangsetja vélina er eldsneytið alveg búið.
Aftengið vírinn frá kertinu.
Fjarlægið kertið, setjið 30 ml af smurolíu í kertaopið og togið hægt í startarareipið nokkrum sinnum til að dreifa olíunni um strokkinn og koma í veg fyrir að hann tærist á þeim tíma árs sem sláttuvélin er ekki í notkun.
Komið kertinu lauslega fyrir.
Herðið allar rær, bolta og skrúfur.
Skoðið og herðið allar festingar.
Takið kertið úr og togið í snúningssveifina til að snúa vélinni hratt og fjarlægja umframolíu úr strokknum.
Setjið kertið í og herðið að 20 N∙m með átaksmæli.
Sinnið nauðsynlegri viðhaldsvinnu, sjá nánar í .
Kannið stöðu smurolíu; sjá Smurolíuhæð könnuð.
Fyllið á eldsneytisgeyminn með nýju eldsneyti; sjá Fyllt á eldsneytisgeyminn.
Tengið vírinn við kertið.